Einn fluttur á slysdeild eftir þriggja bíla árekstur

Frá vettvangi á Reykjanesbraut.
Frá vettvangi á Reykjanesbraut. Ljósmynd/Eva Björk

Einn var fluttur á slysadeild með minniháttar meiðsli eftir þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut á móts við Haukahúsið laust eftir klukkan 13 í dag.

Að sögn Jónasar Árnasonar, varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, þurfti ekki að kalla út dælubíl en einn aðili hafi verið fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild með minni háttar meiðsli.

Talsverð bílaröð myndaðist á Reykjanesbrautinni í átt til Hafnarfjarðar í kjölfar árekstursins enda er umferðin jafnan þung á brautinni.

Talsverð bílaröð myndaðist á Reykjanesbrautinni í átt til Hafnarfjarðar í …
Talsverð bílaröð myndaðist á Reykjanesbrautinni í átt til Hafnarfjarðar í kjölfar árekstursins. Ljósmynd/Eva Björk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert