Enginn bjór handa Led Zeppelin

„Tveir æðisgengnir klukkutímar.“ Í dag eru 50 ár síðan breska …
„Tveir æðisgengnir klukkutímar.“ Í dag eru 50 ár síðan breska rokksveitin Led Zeppelin hélt tónleika á vegum Listahátíðar í Reykjavík í Laugardalshöll mánudaginn 22. júní 1970. Eyjólfur Jónsson, sundkappi og lögregluþjónn, stóð vörð um dyr Hallarinnar svo liðsmenn sveitarinnar fengju frið til að stilla upp daginn fyrir tónleikana. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson

„Þetta voru stærstu og merkilegustu bítlatónleikar, sem haldnir hafa verið hér á landi, frá því að bítlahljómleikasögur hófust,“ skrifaði Stefán Halldórsson blaðamaður í gagnrýni sinni í Morgunblaðinu miðvikudaginn 24. júní 1970. Til umfjöllunar voru tónleikar bresku rokksveitarinnar Led Zeppelin í Laugardalshöll mánudagskvöldið 22. júní, fyrir réttum 50 árum í dag, en sveitin, sem þá var aðeins á sínu öðru starfsári, kom til Íslands á vegum Listahátíðar í Reykjavík.

Skrifaði Stefán að tæplega fimm þúsund ungmenni hefðu verið í Höllinni, gólf og áhorfendapallar þéttskipuð tónleikagestum. Tónleikarnir hófust í seinna lagi, að minnsta kosti sé miðað við algengar tímasetningar nú á dögum, fyrsti tónninn sveif út í áhorfendaskarann klukkan hálfellefu um kvöldið og sá síðasti dó út klukkan hálfeitt, tveimur stundum síðar. „Tveir æðisgengnir klukkutímar,“ skrifaði Stefán um upplifun sína af tónleikunum og hefur oft verið vitnað til þeirra orða síðan.

Ruku upp til handa og fóta

Greindi Stefán frá því í umfjöllun sinni að eftir rúmlega klukkustundar leik hafi hálfgerður misskilningur komið upp í salnum. „[Þá] sagði söngvarinn, Robert Plant: „Þetta er síðasta lagið okkar, „How Many More Times“. Sennilega ætlaði hljómsveitin bara að taka sér hlé á eftir þessu lagi, en halda síðan hljómleikunum áfram. Hins vegar skildu unglingarnir þessa setningu sem svo, að hljómleikunum væri að ljúka, og því ruku allir upp til handa og fóta: Nú var síðasta tækifærið til að gera einhver læti, til að æsa sig svolítið. Minna mátti nú ekki vera en að menn æstu sig svolítið á hljómleikum einnar frægustu hljómsveitar í heimi, ekki síst þar sem aðgöngumiðinn kostaði 450 krónur,“ sagði hann af því sem þarna kom upp.

Mikill troðningur hafi svo orðið við sviðið og einhverjir klemmst á milli sviðs og hópsins fyrir aftan. Lögregla hafi reynt eftir megni að róa mannskapinn sem ekki hafi auðnast fyrr en sveitin stöðvaði spilamennskuna og hvarf af sviði. Tókst þá Sveini R. Haukssyni, miðasölustjóra Listahátíðar, að róa tónleikagesti, eftir því sem Stefán greinir frá.

Til landsins með Gullfaxa

„Hljómsveitin kom þá aftur fram á sviðið og flutti þrjú lög til viðbótar á einni syrpu, „Whole Lotta Love“, „Communication Breakdown“ og eitt nýtt lag. Voru unglingarnir hinir rólegustu á meðan. Að hljómleikunum loknum hvíldu stjörnurnar sig um stund í búningsherbergi, en héldu síðan út á Hótel Sögu í lögreglubifreið. Höfðu þeir Zeppelin-menn hið mesta gaman af þessu öllu saman,“ skrifaði gagnrýnandinn.

Led Zeppelin nýkomin til landsins. Stefán Halldórsson blaðamaður skrifaði við …
Led Zeppelin nýkomin til landsins. Stefán Halldórsson blaðamaður skrifaði við þessa mynd að ógæfa hefði verið að Led Zeppelin og aðstoðarmenn sveitarinnar kynnu ekki íslensku. Þeir hefðu þá áttað sig á rakarastofunni í baksýn og getað farið í klippingu. Morgunblaðið/Ómerkt

Í blaði dagsins áður, þriðjudagsins 23. júní, hafði Stefán einnig verið við skrif og greindi þar ítarlega frá komu sveitarinnar til landsins, en þeir félagar lentu um klukkan tvö sunnudaginn 21. júní í Keflavík með sjálfum Gullfaxa Flugfélags Íslands, fyrstu þotunni í þjónustu íslensks flugfélags sem þarna var svo gott sem glæný, hafði komið til landsins með viðhöfn 27. júní 1967.

Page lítill og vandræðalegur

Lýsti Stefán því hvernig hópur aðdáenda hefði beðið á flugvellinum og síst minni hópur blaðamanna. „Stóra stundin var runnin upp. Robert Plant, söngvarinn, gekk fyrstur út, en síðan komu þeir einn af öðrum, John Bonham, Jimmy Page og John Paul Jones, eltir af umboðsmönnum og burðarkörlum.

Móttökunefndin, Signý Sen, gekk nú fram, og afhenti gítarleikaranum Jimmy Page risastóran blómvönd, ljósmyndarar smelltu af, og síðan hélt hersingin inn í flugstöðvarbygginguna. Þar gafst blaðamönnum gott færi á að ræða við stjörnurnar, og við svifum þarna á Jimmy Page, sem stóð þarna, lítill og vandræðalegur með blómvöndinn í annarri hendi, en gítar í hinni,“ sagðist Stefáni frá.

Eins manns móttökunefnd Listahátíðar, Signý Sen, tekur á móti Led …
Eins manns móttökunefnd Listahátíðar, Signý Sen, tekur á móti Led Zeppelin í Keflavík, þangað sem sveitin ferðaðist með glænýrri þotu Flugfélags Íslands, Gullfaxa, sem kom til landsins með viðhöfn sumarið 1967. Jimmy Page „lítill og vandræðalegur með blómvöndinn“. Morgunblaðið/Ómerkt

Page svaraði þarna fáeinum spurningum, sagði ferðalagið hafa gengið prýðilega og sveitina hafa komið víða við. Tónleikaferðirnar væru þó teknar að verða nokkuð þreytandi sagði hann, „sérstaklega þó í Bandaríkjunum“.

„Læknirinn bannar það“

Var tónlistarmönnunum því næst ekið í tveimur svörtum og gljáfægðum Mercedes Benz-bifreiðum í lögreglufylgd á dvalarstað sinn, Hótel Sögu, en Led Zeppelin hafði reyndar ekki nema 42 klukkustunda viðdvöl á Íslandi sumarið 1970.

Tók fjölmiðlafólk nú að sækja það mjög stíft að fá blaðamannafund haldinn á Hótel Sögu en hafði ekki erindi sem erfiði. Umboðsmaðurinn, „síðhærður og skeggjaður maður að nafni Cole“, hafi þá tekið málin í sínar hendur en lítið komið út úr því. Sjónvarpsmenn hafi þó fengið að leggja nokkrar spurningar fyrir Robert Plant sem sat í hægindastól með koníaksflösku hjá sér. Ekki hafi hann þó drukkið úr flöskunni, skrifaði Stefán, „læknirinn bannar það,“ vitnar hann í að Plant hafi útskýrt þurrð sína. Á þessum tíma átti söngvarinn tæplega tvo mánuði í 22 ára afmælisdaginn sinn svo hann hefur haft strangan heimilislækni.

Bjór, því miður, ekki til

Skömmu síðar héldu þeir Zeppelin-menn í Laugardalshöllina til að stilla upp tækjum sínum og tólum fyrir stóra kvöldið daginn eftir. Fylltist Höllin þá þegar af áhorfendum og þótti hljómsveitinni brátt nóg um svo hún lét að lokum varpa öllum á dyr og stóð Eyjólfur Jónsson, sundkappi og lögregluþjónn, vörð um dyrnar svo engum varð inngöngu auðið.

Þá bar þar að Erling Björnsson, umboðsmann hljómsveitarinnar Trúbrots sem halda skyldi kveðjutónleika í Glaumbæ þá um kvöldið, Shady Owens og Karl Sighvatsson voru að hætta í sveitinni. Erlingur fékk umsvifalaust að eiga orð við þá Zeppelin-menn og bauð þeim þegar í gleðskapinn á Glaumbæ sem þeir þáðu án umhugsunar.

Gestir Glaumbæjar ráku upp stór augu þegar þeir áttuðu sig á hvaða stórstjörnur væru mættar á tónleika Trúbrots á einum vinsælasta skemmtistað Reykjavíkur sem reyndar átti ekki langan líftíma fyrir höndum þar sem Glaumbær gjöreyðilagðist í bruna 4. desember 1971, merkilegt nokk sama dag og bruninn varð á tónleikum Frank Zappa í Montreux í Sviss sem hljómsveitin Deep Purple samdi hið ódauðlega lag, Smoke on the Water, um.

Á Glaumbæ var auðvitað spurt hvað þessir tignu gestir vildu drekka og báðu þeir vinsamlegast um bjór. „Því miður, ekki til,“ var svarið enda átti bjórbann eftir að ríkja á Íslandi næstu 19 ár. Næst á óskalistanum var þá kampavín og af því var til nóg og voru flöskur bornar á borð sveitarinnar og skrifaði blaðamaður Morgunblaðsins að John Bonham trommuleikari hafi þá sýnt mikið listfengi við opnun flasknanna og gætt þar að öllum kúnstarinnar reglum. Er leið á drykkjuna sótti svo hungur að söngvaranum sem endaði með því að starfsfólk eldhússins gaf Robert Plant brauðsneið með kæfu til að seðja sárasta hungrið.

Kvöldið leið svo við mikinn glaum og klöppuðu Zeppelin-liðar Trúbroti óspart lof í lófa á kveðjutónleikunum, en Stefán Halldórsson blaðamaður ákvað að pakka í vörn um tvöleytið og sagði því ekki meira af atburðum kvöldið fyrir tónleika Led Zeppelin í Laugardalshöll mánudaginn 22. júní 1970.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert