Staðfesta skætt afbrigði fuglaflensu á Íslandi

Gæs með unga á Álftanesi.
Gæs með unga á Álftanesi. mbl.is/Ómar Óskarsson

Matvælastofnun hefur fengið staðfest að fuglaflensuveirur sem greinst hafa að undanförnu hér á landi séu af skæða afbrigðinu H5N1, sem geisar einnig í nágrannalöndum Íslands.

Rannsóknarstofa í Þýskalandi hefur haft veirur úr hænum á Skeiðum og heiðagæs í Hornafirði til nánari rannsóknar og svar barst frá henni í dag sem staðfesti að um væri að ræða sama alvarlega meinvirka afbrigði fuglaflensuveirunnar H5N1 sem geisað hefur í Evrópu undanfarna mánuði.

Að öllum líkindum eru þær veirur sem hafa greinst í öðrum fuglum hér á landi af sömu gerð, þar sem þetta er það afbrigði sem langmest er um í Evrópu um þessar mundir.

„Í gildi er efsta stig viðbúnaðar vegna fuglaflensu. Smithætta fyrir alifugla er mikil og brýnt að fuglaeigendur gæti ýtrustu sóttvarna,“ segir á vef stofnunarinnar þar sem þetta er tilkynnt.

Fólk er enn hvatt til að tilkynna Matvælastofnun um dauða villta fugla sem það finnur. Tilkynna skuli um veika villta fugla til viðkomandi sveitarfélags.

Staðfestir fyrra mat

Þegar fuglaflensan greindist í heimilishænum hækkaði Matvælastofnun viðbúnaðarstig vegna sjúkdómsins í efsta stig, þar sem stofnunin taldi allar líkur á að um hið skæða afbrigði væri að ræða. Þessi niðurstaða rannsókna FLI staðfestir því það mat og þykir því renna stoðum undir að rétt hafi verið að virkja viðbragðsáætlun stofnunarinnar.

Smithætta fyrir alifugla og aðra fugla í haldi er mikil og Matvælastofnun brýnir enn og aftur fyrir fuglaeigendum að framfylgja þeim reglum sem í gildi eru, sbr. auglýsingu um tímabundnar varnaraðgerðir sem sett var af ráðherra 25. mars sl.. Samkvæmt 2. gr. auglýsingarinnar er öllum þeim sem halda alifugla og aðra fugla skylt að fylgja reglum, sem birtar eru hér á vef stofnunarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert