Fara til mælinga í Öskju á morgun

Hitastigið mældist 27 gráður í Víti.
Hitastigið mældist 27 gráður í Víti. mbl.is/Árni Sæberg

Teymi jarðvísindamanna heldur upp að Öskju á morgun til að framkvæma mælingar við eldstöðina. Vísindamennirnir munu meðal annars mæla hitastigi í Víti og gas á svæðinu.

Þetta segir Kristín Elísa Guðmundsdóttir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. 

Rúv greindi frá því fyrir skömmu að brennisteinsþef leggi nú upp úr Öskju. 

Kristín Elísa segir engan gasmæli vera við eldstöðina en að slíkur mælir verði með í för á morgun.

Fundað á morgun

Vatnshiti í Víti hefur mælst 27 gráður, sem er um 9 gráðum hærra en mælst hefur áður í sumar. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur sagði við mbl.is fyrr í dag að kvika væri mögulega á litlu dýpi.

„Þá er þetta sem við erum að tala um bara á leiðinni. Ef hit­inn í Víti er far­inn að hækka svona mikið þá þýðir það að það er kom­in kvika þarna inn miðað við hvernig land­breyt­ing­in hef­ur verið,“ sagði Þorvaldur.

Landris hófst í Öskju fyrir um tveimur árum. Að sögn Kristínar hefur skjálftavirkni á svæðinu ekki aukist nýlega en Veðurstofan fylgist þó grannt með gangi mála.

Langtímaeftirlitsfundur verður haldinn á morgun þar sem meðal annars verður farið yfir stöðuna í Öskju og á Reykjanesi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert