Hæstiréttur Íslands hefur veitt Dista ehf. áfrýjunarleyfi í máli fyrirtækisins gegn ÁTVR. Málið snýst um ákvörðun ÁTVR um að hætta sölu á Faxe Witbier og Faxe IPA í hálfslítra dósum.
Eins og fram hefur komið á mbl.is og í Morgunblaðinu höfðaði heildverslunin Dista ehf. mál á hendur ÁTVR í júní 2021 og krafðist ógildingar á tveimur ákvörðunum ÁTVR um að fella tvær bjórtegundir úr vöruúrvali þeirra og hætta innkaupum þeirra þar sem þær hefðu ekki náð ákveðnu viðmiði um framlegð.
Byggði Dista á því að ÁTVR hefði verið óheimilt að byggja ákvörðunartöku sína á framlegð þar sem það viðmið ætti ekki stoð í lögum um verslun með áfengi og tóbak, heldur bæri við ákvarðanir þar um að miða við eftirspurn kaupenda, sem vísað væri til í 5. mgr. 11. gr. laga um verslun með áfengi og tóbak sem réðist af sölumagni hlutaðeigandi vöru.
Í júní 2022 felldi Héraðsdómur Reykjavíkur úr gildi ákvarðanir ÁTVR á þeim forsendum að þær hafi brotið í bága við 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar og lögmætisreglu íslensks réttar. Landsréttur sneri dómnum við í febrúar síðastliðnum.
Í ákvörðun Hæstaréttar segir meðal annars: „Að virtum gögnum málsins verður talið að dómur í því geti haft fordæmisgildi meðal annars um túlkun 5. mgr. 11. gr. laga nr. 86/2011.“