Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu vinnur nú að því að slökkva sinueld á Arnarnesi.
Þetta staðfestir Jónas Árnason, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is og bætir við að ekki sé um mikinn eld að ræða.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum nær sinubruninn ekki yfir stórt svæði.