Áfram í haldi grunaður um manndráp

Maðurinn, sem er á sjötugsaldri, hefur setið í gæsluvarðhaldi frá …
Maðurinn, sem er á sjötugsaldri, hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því að upp komst um málið. mbl.is/Þorgeir

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað karlmann, sem er grunaður um að hafa orðið sambýliskonu sinni að bana, í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald. Lögreglan segir að rannsókn málsins miði vel.

Konan, sem var fimmtug, fannst látin á heimili sínu þann 22. apríl.

„Sambýlismaður hennar á sjötugsaldri hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því að upp komst um málið og er hann grunaður um að hafa valdið konunni áverkum sem leiddu til dauða hennar. Embætti Lögreglustjóra gerði í dag kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald og nú á grundvelli almannahagsmuna, sbr. 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála. Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað manninn í fjögurra vikna gæsluvarðhald á þeim grundvelli,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. 

Þá segir, að þegar lögregla hafi lokið rannsókn málsins verði það sent embætti héraðssaksóknara til ákvörðunar um saksókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert