Ásmundur Einar Daðason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, ætlar að hætta á þingi eftir þetta kjörtímabil. Frá þessu greinir hann á Facebook-síðu sinni eftir að hafa tilkynnt fyrst ákvörðunina á kjördæmisþingi Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi í morgun.
„Síðustu ár hafa verið krefjandi og lærdómsríkur tími. Þakka fyrir gott samstarf við fjölmarga utan þings og innan. Hlakka til framtíðarinnar,“ skrifar Ásmundur Einar.
Ekki náðist í Ásmund Einar við vinnslu fréttarinnar en Facebook-færslu hans má sjá hér að neðan.