Lokatölur liggja fyrir í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og er staðan óbreytt frá síðustu talningu. Ólöf Nordal leiðir listann, Guðlaugur Þór Þórðarson er annar og Brynjar Níelsson er þriðji. Alls voru talin 3.329 atkvæði.
Auðir og ógildir seðlar voru 101 talsins. Alls voru greidd 3.430 atkvæði.
Átta efstu í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík.