Eggert Skúlason, fyrrverandi ritstjóri DV, lýsti því yfir á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi að hann hafi ráðið sig sem kosningastjóra hjá Framsóknarflokknum í Reykjavík.
„Lífið getur verið svo litríkt. Nú er það grænt. Með mjög stuttum aðdraganda hef ég tekið að mér stórt og spennandi verkefni. Ég réði mig í dag sem kosningastjóra hjá Framsóknarflokknum í báðum kjördæmum í Reykjavík,“ sagði Eggert í færslu sinni og kvaðst hlakka til að takast á við verkefnið. „Eða eins og vinur minn sagði. „Þú ræðst aldrei á garðinn þar sem hann er lægstur.“