Nú liggja fyrir úrslit í öllum kjördæmum utan Norðvesturkjördæmis, en búist er við tölum þar á næstu klukkustund. Það verður ekki fyrr en þá sem ljóst verður hverjir eru uppbótarþingmenn í öllum kjördæmum, en hægt er að staðfesta hverjir eru öruggir inn sem kjördæmakjörnir þingmenn hvers kjördæmis.
Reykjavík norður – Björt heldur sæti sínu:
Í Reykjavíkurkjördæmi norður er það Guðlaugur Þór Þórðarson, oddviti sjálfstæðismanna, sem er fyrsti maður í kjördæminu. Á eftir honum koma Katrín Jakobsdóttir (V), Birgitta Jónsdóttir (P), Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (D), Þorsteinn Víglundsson (C), Steinunn Þóra Árnadóttir (V), Björn Leví Gunnarsson (P), Birgir Ármannsson (D) og Björt Ólafsdóttir (A).
Reykjavík suður – Lilja Dögg inni:
Í Reykjavíkurkjördæmi suður eru eftirfarandi kjördæmakjörnir þingmenn: Ólöf Nordal (D), Svandís Svavarsdóttir (V), Ásta Guðrún Helgadóttir (P), Brynjar Níelsson (D), Hanna Katrín Friðriksson (C), Kolbeinn Óttarsson Proppé (V), Gunnar Hrafn Jónsson (P), Sigríður Á. Andersen (D) og Lilja Dögg Alfreðsdóttir (B).
Suðvestur – Vilhjálmur Bjarnason inni:
Í stærsta kjördæmi landsins, Suðvesturkjördæmi eru eftirfarandi þingmenn kjördæmakjörnir: Bjarni Benediktsson (D), Bryndís Haraldsdóttir (D), Jón Þór Ólafsson (P), Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (C), Rósa Björk Brynjólfsdóttir (V), Jón Gunnarsson (D), Óttarr Proppé (A), Óli Björn Kárason (D), Eygló Harðardóttir (B), Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) og Vilhjálmur Bjarnason (D).
Norðaustur – Samfylking nær manni:
Í víðfeðmasta kjördæmi landsins, Norðausturkjördæmi eru kjördæmakjörnir þingmenn eftirfarandi: Kristján Þór Júlíusson (D), Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (B), Steingrímur J. Sigfússon (V), Njáll Trausti Friðbertsson (D), Þórunn Egilsdóttir (B), Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (V), Einar Aðalsteinn Brynjólfsson (P), Valgerður Gunnarsdóttir (D) og Logi Már Einarsson (S).
Suður – Framsókn tapar tveimur mönnum:
Í Suðurkjördæmi eru eftirfarandi þingmenn kjördæmakjörnir og þar af leiðandi öruggir inn: Páll Magnússon (D), Sigurður Ingi Jóhannsson (B), Ásmundur Friðriksson (D), Smári McCarthy (P), Vilhjálmur Árnason (D), Ari Trausti Guðmundsson (V), Silja Dögg Gunnarsdóttir (B), Unnur Brá Konráðsdóttir (D) og Jóna Sólveig Elínardóttir (C).
Uppbótarsætin – Viðreisn og Björt framtíð með 3 hvort framboð
Miðað við stöðuna núna eru þau Andrés Ingi Jónsson, hjá Vinstri grænum og Sigrún Gunnarsdóttir hjá Bjartri framtíð, inni sem uppbótarþingmenn í Reykjavík norður. Í Reykjavík suður eru þau Nichole Leigh Mosty, hjá Bjartri framtíð og Pawel Bartoszek hjá Viðreisn, inni í Reykjavík suður.
Í Suðvesturkjördæmi eru Theodóra S. Þorsteinsdóttir, Bjartri framtíð og Jón Steindór Valdimarsson í Viðreisn inni sem uppbótarþingmenn. Í Norðausturkjördæmi er Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, inni sem uppbótarþingmaður og í Suðurkjördæmi er Oddný Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, inni í uppbótarsæti. Í Norðvesturkjördæmi er það Guðjón S. Brjánsson hjá Samfylkingu sem er inni í uppbótarsæti.