Bleikjan vildi allra minnstu púpurnar

Þeir félagar lönduðu fimmtán bleikjum og tveimur sjóbirtingum. Hér er …
Þeir félagar lönduðu fimmtán bleikjum og tveimur sjóbirtingum. Hér er Jose Alvarado með fallegt eintak sem fékk frelsi stuttu síðar. Ljósmynd/Ólafur Hilmar Foss

Það var kaldur gluggaveðursdagur sem Ólafur Hilmar Foss og Jose Alvarado fengu á Torfastöðum í Soginu í gær. Það kom þeim ekki á óvart enda Ólafur vel kunnur svæðinu og kallar það sinn heimavöll. Frískleg norðaustanáttin, beint í andlitið var áminning um að veturinn er nýbúinn að segja af sér.

Þetta er annað skiptið sem þeir félagar hafa vitjað bleikjumiða á Torfastöðum. Um miðjan mánuðinn gerðu þeir félagar fína veiði á svæðinu. Lönduðu þá nítján fiskum og var nánast allt bleikja. Stöku birtingur.

Þetta er það sem svo margir hafa svo lengi beðið …
Þetta er það sem svo margir hafa svo lengi beðið eftir. Fiskur á og veiðisumarið er framundan. Ólafur Hilmar Foss með allt í keng á Torfastöðum í Soginu. Ljósmynd/Ólafur Hilmar Foss

Vindkælingin í gær var hressileg. Og það var haft fyrir hlutunum. „Við vorum ekkert að flýta okkur. Byrjuðum ekki fyrr en um hádegi og vissum að þetta yrði kaldur dagur. Vatnsstaðan er óvenju lág miðað við árstíma og rennslið er um 90 rúmmetrar þegar eðlilegt væri allt að 120 rúmmetrar. Við þurftum að hafa svolítið fyrir hlutunum en erfiðinu fylgir yfirleitt ávinningur,“ upplýsti Ólafur í samtali við Sporðaköst.

Ólafur segir að vatnsstöðuna óvenju lága miðað við árstíma. Það …
Ólafur segir að vatnsstöðuna óvenju lága miðað við árstíma. Það kom ekki að sök hjá þeim félögum í gær. Ljósmynd/Jose Alvarado

Ólafur þekkir svæðið afskaplega vel og hans reynsla, sérstaklega á þessum tíma er að minnstu púpurnar gefa helst veiði. Það reyndist þeim félögum vel og þeir fóru alveg niður stærð tuttugu í púpum. Atlas, Blóðormur og heimatilbúin afbrigði gáfu þeim fljótlega fiska. Stærstu púpurnar sem voru að virka voru stærð sextán. Stærri púpur fengu ekki athygli.

Tveir fallegir geldfiskar - sjóbirtingar voru í aflanum, annars var …
Tveir fallegir geldfiskar - sjóbirtingar voru í aflanum, annars var þetta allt bleikja. Ljósmynd/Ólafur Hilmar Foss

Þegar upp var staðið lönduðu þeir félagar fimmtán bleikjum og tveimur fallegum sjóbirtingum. Þykkir geldfiskar. Ekkert mjög stórir en sterkir. Aðspurður um ástandið á bleikjunni svaraði Ólafur því til að hún væri frekar straumlínulöguð á þessum tíma en það vantaði ekki í hana kraftinn eða orkuna.

Hversu fögur sjón er þetta? Bleikjan er okkar fallegasti fiskur …
Hversu fögur sjón er þetta? Bleikjan er okkar fallegasti fiskur með sinni litadýrð. Ljósmynd/Ólafur Hilmar Foss

Fyrstu bleikjunni á Torfastöðum, svo vitað sé landaði Ólafur fimmta apríl. Hann og Jose voru aftur á ferðinni þann 14. og þá lönduðu þeir nítján fiskum. Svo í gær voru þeir með sautján.

Einn hjallur sem veiðimenn þurfa að komast yfir er að nota nógu smáar púpur. Það getur verið erfitt, sérstaklega fyrir byrjendur að hafa trú á þessum agnarsmáu púpum. En það er fiskurinn sem er dómari þessum málum. Þegar púpurnar eru orðnar þetta smáar getur verið gott að þær séu hnýttar á sterka öngla. Bleikjustofninn í Soginu er öflugur og innan um eru alvöru hlussur. Þegar sett er í slíka getur verið gott að vita að krókurinn er öflugur.

Kaldir puttar og dofnar tær. En gleðin var ósvikin. Það …
Kaldir puttar og dofnar tær. En gleðin var ósvikin. Það virðist vera mikið af fiski á Torfastöðum en smáar og jafnvel smæstu púpurnar eru lykillinn að veiði. Ljósmynd/Jose Alvarado

Með hlýnandi veðri á næstunni kemst meira líf í bleikjuna og þekkt er að veiðisvæðin Ásgarður og Bíldsfell gefa oft fanta bleikjuveiði á þessum tíma árs. Bestu dagarnir þar hafa í gegnum árin komið þegar vindur er hægur en það er ekki einhlítt. Þá má ekki gleyma Torfastöðum, sem fengið hafa minni athygli í gegnum árin en ljóst að þar getur verið hægt að gera góða hluti.

Veiðin hjá Ólafi og Jose í gær var frábær. Kaldir puttar og dofnar tær, en gleðin og allt hitt var á sínum stað.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert