Greinar þriðjudaginn 2. apríl 2024

Fréttir

2. apríl 2024 | Fréttaskýringar | 519 orð | 2 myndir

Áforma að bora 13 holur á Nesjavöllum

Baksvið Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Orka náttúrunnar (ON) áformar að bora tíu nýjar vinnsluholur og þrjár niðurdælingarholur við Nesjavallavirkjun í þeim tilgangi að viðhalda vinnslugetu virkjunarinnar og auka hlut djúprar niðurdælingar ofan í jarðhitageyminn í stað millidjúprar niðurdælingar. Einnig er áformuð aukin efnistaka úr námu við Stangarháls. Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 136 orð | 1 mynd

Áfram stöðug virkni í eldgosinu

Virkni í eldgosinu hefur verið nokkuð stöðug síðan á mánudaginn, 25. mars. „Við sjáum ekki neinar breytingar á þessu núna. Þetta bara mallar áfram,“ segir Böðvar Sveinsson, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 127 orð | 1 mynd

Áslákur í Hafnarborg í hádeginu

Áslákur Ingvarsson barítón er gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda hádegistónleikaraðarinnar í Hafnarborg, í safninu í dag, þriðjudag, kl. 12. Í viðburðarkynningu kemur fram að Áslákur lauk BA-prófi við söngbraut… Meira
2. apríl 2024 | Erlendar fréttir | 376 orð

„Havana-veikin“ rakin til Rússa

Hin dularfulla „Havana-veiki“, sem bandarískir erindrekar hafa orðið fyrir barðinu á undanfarin ár, hefur verið tengd við rússnesku herleyniþjónustuna GRU, samkvæmt rannsókn sem þrír fjölmiðlar beggja vegna Atlantsála greindu frá um helgina Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 177 orð | 1 mynd

Eldur í urðunarstöð Sorpu á Álfsnesi

Sinueldur kviknaði út frá urðunarstað Sorpu á Álfsnesi á sunnudagskvöld. Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta- og þróunarstjóri Sorpu bs., sagði í samtali við Morgunblaðið að gengið hefði vel að slökkva eldinn, þökk sé skjótum viðbrögðum starfsfólks Sorpu og slökkviliðsins Meira
2. apríl 2024 | Erlendar fréttir | 97 orð | 1 mynd

Erdogan viðurkennir ósigur

Mansur Yavas, sitjandi borgarstjóri Ankara, fagnaði kosningasigri með stuðningsmönnum sínum á laugardagskvöld. Flokkur hans, tyrkneski stjórnarandstöðu- flokkurinn CHP, vann mikla sigra í sveitarstjórnarkosningum í Tyrklandi og hélt stjórn sinni í… Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 229 orð | 1 mynd

Fjölda dómara mögulega breytt

„Þegar það var ákveðið með gildandi lögum að dómarar yrðu sjö þá var haft í huga að ef til dæmis dómarar forfallast eða eru í leyfi til lengri tíma er ekki gert ráð fyrir því að það sé settur dómari í staðinn,“ segir Benedikt Bogason… Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 156 orð | 1 mynd

Frambjóðendur í startholum

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra festi sér nýlega lén á netinu, sem mögulega er til marks um yfirvofandi forsetaframboð hennar, líkt og margir hafa gert skóna eða hvatt hana til. Ekki hefur náðst í Katrínu því til staðfestingar Meira
2. apríl 2024 | Erlendar fréttir | 73 orð

Fuglaflensa greindist í Texas

Bandaríska sóttvarnastofnunin CDC staðfesti í gær að Texasbúi hefði greinst með fuglaflensu, H5N1, en maðurinn er sagður hafa smitast af mjólkurkúm. Þetta er einungis annað tilfelli fuglaflensu í mönnum sem greinist í Bandaríkjunum, og var maðurinn sagður á batavegi Meira
2. apríl 2024 | Erlendar fréttir | 95 orð

Íranskur herforingi veginn í Damaskus

Spenna í Mið-Austurlöndum minnkaði ekki í gær þegar eldflaugar hæfðu sendiskrifstofu Írana í Damaskus, höfuðborg Sýrlands. Þær urðu írönskum hershöfðingja og sex öðrum herforingjum að fjörtjóni, auk ótilgreinds fjölda eiginlegra sendierindreka Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 45 orð | 1 mynd

Liverpool stendur best að vígi

Liverpool stendur best að vígi í baráttunni um enska meistaratitilinn í knattspyrnu en liðið er tveimur og þremur stigum á undan Arsenal og Manchester City eftir leiki páskahelgarinnar. Öll liðin eiga þó enn eftir níu leiki á endasprettinum og marga þeirra mjög erfiða Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 107 orð | 1 mynd

Lætin í Musk sögð draga úr dálæti á Tesla

Markaðsrannsóknir í Bandaríkjunum benda til að mjög hafi dregið úr hrifningu neytenda á rafbílaframleiðandanum Tesla. Þess sjást raunar engin merki í sölutölum bílarisans, sem umbylti markaðnum, en álitið hefur breyst mikið á aðeins þremur árum Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 135 orð | 2 myndir

Náðu að skila tónlistarfólkinu aftur suður

„Vélin var akkúrat að fara með alla popparaflóruna sem kom fram,“ segir Kristján Freyr Halldórsson, rokkstjóri tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður, þegar blaðamaður slær á þráðinn. „Við náðum að skila þeim aftur suður,“ … Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 360 orð | 2 myndir

Ófærð, él og miklar tafir

Norðaustanátt reið yfir landið um páskahelgina og með henni éljagangur víða um land. Þurfti að loka mörgum vegum á Norður- og Austurlandi sökum ófærðarinnar og víða hefur verið varað við þæfingi og skafrenningi á vegum Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 290 orð

Ófærð setti mikinn svip á páskahelgina

Páskahríð setti mark sitt á helgina, einkum á Norður- og Austurlandi. Þurfti að loka vegum þar víða, og var hringveginum lokað á nokkrum stöðum á páskadag, meðal annars á Öxnadalsheiði, Ljósavatnsskarði, Ólafsfjarðarmúla og Vatnsskarði, vegna mikillar úrkomu og skafrennings og lítils skyggnis Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 27 orð

Rangt nafn

Rangt nafn stóð undir mynd í þættinum Þrífarar vikunnar í Sunnudagsblaðinu á páskadag. Þar átti að vera nafn Snorra Olsen skattstjóra. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 80 orð | 1 mynd

Rússar sakaðir um hljóðárásir í Havana

Rannsókn þriggja fjölmiðla, The Insider, Der Spiegel og 60 Minutes, bendir til þess að leyniþjónusta rússneska hersins, GRU, beri ábyrgðina á „Havana-veikinni“, en svo nefnist samansafn einkenna, sem bandarískir erindrekar hafa fundið… Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 490 orð | 1 mynd

Segir ON hafa brotið grunnreglu

Geir Áslaugarson geir@mbl.is Sigurður Ástgeirsson framkvæmdastjóri Ísorku segir Orku náttúrunnar (ON) hafa brotið á grunnreglu raforkuviðskipta og segir margt sem hafi komið fram í skriflegu svari ON til Morgunblaðsins síðastliðinn fimmtudag varðandi úrskurð Raforkueftirlitsins (ROE) vekja undrun. Hann segir ON ekki fara með rétt mál og að ON hafi haldið upplýsingum frá ROE sem voru birtar í svari ON við fyrirspurn Morgunblaðsins. Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 327 orð | 1 mynd

Sífellt fleiri óska aðstoðar velferðarsjóðsins

Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Fleiri umsóknir hafa borist um aðstoð úr Velferðarsjóði Eyjafjarðar á fyrstu þremur mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra. Staða sjóðsins er þannig að hætta er á að eftirspurn verði umfram getu sjóðsins. Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 93 orð | 1 mynd

Sjötti sólríkasti marsmánuðurinn

Nýliðinn marsmánuður var sólríkur í Reykjavík. Einkanlega var það seinni hluta mánaðarins sem sólin skein glatt. Lendir mánuðurinn í sjötta sólríkasta sæti marsmánaða síðustu rúmlega 110 ára sem sólskinsmælingar hafa verið gerðar í höfuðborginni Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 912 orð | 2 myndir

Skapandi sögur og ljóð fyrir lýðræðið

„Íslensk tunga lifir ekki án bókmennta og sköpunar. Sérstök stefna sem snýr að eflingu bókmennta og stuðningi er því afar mikilvæg og margt í þeim drögum sem fyrir liggja lofar góðu,“ segir Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 299 orð | 1 mynd

Stefán Edelstein

Stefán Edelstein, skólastjóri, tónlistarkennari og píanóleikari, lést 26. mars sl., 92 ára að aldri. Stefán fæddist í Freiburg í Þýskalandi 28. desember 1931. Foreldrar hans voru dr. Heinz Edelstein, tónlistarkennari og sellóleikari, og dr Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 64 orð | 1 mynd

Um 200 skemmtiferðaskip til Ísafjarðar

Um 200 skemmtiferðaskip eru bókuð til Ísafjarðar í sumar. Hið fyrsta er væntanlegt 13. apríl og með því fer boltinn að rúlla. Hvert skipið kemur á eftir öðru og stundum mörg sama daginn. Snemma í júli koma t.d Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 91 orð | 1 mynd

Úkraínuferð aflýst af öryggisástæðum

Utanför Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands var aflýst á síðustu stundu af öryggisástæðum, en til stóð að hann færi utan á páskadag áleiðis til Úkraínu. Þar hafði verið skipulagður fundur með Volodymir Sel­enskí Úkraínuforseta, en að því loknu… Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 649 orð | 1 mynd

Veiðisögukvöld með haustinu

Birna G. Konráðsdóttir Borgarfirði Í nóvember 2022 var hleypt af stokkunum verkefni um sögu laxveiða í Borgarfirði sem Landbúnaðarsafn Íslands stendur að. Í þessu verkefni er sjónum beint að þeirri mikilvægu auðlind sem laxveiðarnar eru og hafa verið í héraðinu, hvernig þær hafa þróast frá landnámi og fram til dagsins í dag. Anna Heiða Baldursdóttir sagnfræðingur var ráðin til starfa við verkefnið en safnstjóri er Ragnhildur Helga Jónsdóttir. Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 210 orð | 1 mynd

Vilja draga lærdóm af faraldrinum

„Ein ástæða fyrir því að við erum að þessu er til að læra, kryfja málin og reyna að bæta samfélagið,“ segir Helgi Örn Viggósson í samtali við Morgunblaðið, en hann er einn af skipuleggjendum málþings sem ber yfirskriftina Segjum frá! sem haldið verður á fimmtudaginn á Reykjavík Natura Meira
2. apríl 2024 | Erlendar fréttir | 109 orð | 1 mynd

Vilja glæpatölfræði yfir innflytjendur

Fram er komin tillaga í breska þinginu um að safnað verði tölfræði um sakaferil innflytjenda eftir þjóðerni. Þar yrði farið að danskri fyrirmynd, en tölfræði þaðan sýnir að glæpatíðni fólks frá Kúveit, Palestínu, Sómalíu og Túnis er mun hærri en meðal Dana Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 72 orð | 1 mynd

Víkingar meistarar meistaranna

Víkingar eru meistarar meistaranna í karlaflokki í fótbolta 2024 eftir sigur á Val í árlegum upphafsleik keppnistímabilsins sem fram fór á Víkingsvellinum í gærkvöld. Leikurinn sjálfur endaði 1:1 eftir tvö mörk á fyrstu þrettán mínútum leiksins Meira
2. apríl 2024 | Innlendar fréttir | 120 orð | 2 myndir

Yngsti meðhjálparinn skrýddi prestinn

Tálknafjörður | Að venju var helgistund í Saurbæjarkirkju á Rauðasandi á föstudaginn langa. Kirkjan á rúmlega 400 ára gamlan fallegan svartan hökul sem notaður er við þetta tilefni. Yngsti meðhjálpari landsins er starfandi við Saurbæjarkirkju, en það er Tryggvi Sveinn Eyjólfsson sem er á 17 Meira

Ritstjórnargreinar

2. apríl 2024 | Leiðarar | 449 orð

Ekki í hítina

Full ástæða er til að fara vel með fjölskyldusilfrið Meira
2. apríl 2024 | Leiðarar | 225 orð

Glöggur leikari

Michael Caine upplifði sjálfur afleiðingar ofurskatta Meira
2. apríl 2024 | Staksteinar | 230 orð | 1 mynd

Sláandi gagnrýni

Geir Ágústsson verkfræðingur fjallar um skóla og fjölmiðla á blog.is: „Ég bý í frekar rólegu svæði í útjaðri Kaupmannahafnar og er hér með eitt og bráðum tvö grunnskólabörn sem ég treysti á einn eða annan hátt hinu opinbera fyrir. Bæði ætlast ég til þess að þau læri eitthvað í skólanum – námsefni, félagsþroska og annað slíkt – en einnig hitt að þau séu laus við heilaþvott. Ég hef ekki séð merki um annað en að þetta traust sé verðskuldað og fyrir það er ég þakklátur. Meira

Menning

2. apríl 2024 | Fjölmiðlar | 181 orð | 1 mynd

Fársjúkur Playboy-heimur

The Playboy Murders er þáttaröð á Invest­igation Discovery þar sem fjallað er um sönn morðmál sem tengjast Playboy-veldinu á einhvern hátt. Dæmigert mál í þessum þáttum segir frá fallegri stúlku sem á þann draum heitastan að verða fyrirsæta hjá… Meira
2. apríl 2024 | Menningarlíf | 1521 orð | 2 myndir

Maður af holdi og blóði

Eftirmáli: Ljóminn um séra Friðrik [...] Óhætt mun að segja að enginn Íslendingur á síðari öldum hafi verið borinn eins miklu lofi og séra Friðrik, ekki einu sinni þjóðhetjan Jón Sigurðsson forseti, „sómi Íslands, sverð þess og skjöldur“ Meira
2. apríl 2024 | Bókmenntir | 568 orð | 3 myndir

Síld, síld … og svo hvarf hún

Fræðirit Fólkið á Eyrinni: Smámyndir og þættir ★★★★· Eftir Örlyg Kristfinnsson. Söluturninn, 2023. Mjúkspjala með innbrotum, 486 bls., myndir, skrár. Meira

Umræðan

2. apríl 2024 | Pistlar | 480 orð | 1 mynd

803 króna hækkun á mánuði

Frumvarp um endurskoðun almannatryggingalaga er varðar öryrkja var til umræðu á Alþingi nýlega. Í hinu nýja endurskoðaða almannatryggingakerfi fær einn hópur einstaklinga hækkun upp á heilar 803 krónur á mánuði Meira
2. apríl 2024 | Aðsent efni | 791 orð | 3 myndir

80% þjóðarinnar búa á SV-horninu í hættu vegna náttúruvár!

Eldvirknin á Reykjanesi er mikið áhyggjuefni. Þörf er á Íslandsskipulagi sem beinir byggð á svæði þar sem náttúruvá er lítil, t.d. í Borgarfirði. Meira
2. apríl 2024 | Aðsent efni | 784 orð | 1 mynd

Fjöllyfjameðferð

Álagið af því að taka mörg lyf á ýmsum tímum getur leitt til streitu eða þeirrar tilfinningar að einstaklingurinn sé að missa tökin á heilsu sinni. Meira
2. apríl 2024 | Aðsent efni | 835 orð | 1 mynd

Friður?

Mengi vestrænna lífsgæða og mannréttinda er því alfarið kristið. Meira
2. apríl 2024 | Aðsent efni | 652 orð | 1 mynd

Opið bréf til landlæknis og heilbrigðisráðherra

Og hvar eigum við gigtarsjúklingar Árna Tómasar að ná í okkar verkjalyf? Meira
2. apríl 2024 | Aðsent efni | 762 orð | 1 mynd

Skipulag Íslands

Mistök í skipulagsmálum eru nú farin að kosta okkur sem þjóð marga tugi milljarða á ári – að nauðsynjalausu. Meira
2. apríl 2024 | Aðsent efni | 418 orð | 1 mynd

Verk sr. Guðmundar Karls tala

Góðan þátt á hann einnig í gerð nýju sálmabókarinnar. Meira

Minningargreinar

2. apríl 2024 | Minningargreinar | 678 orð | 1 mynd

Andrés Kristinsson

Andrés Kristinsson fæddist 17. mars 1939. Hann lést 15. mars 2024. Útför Andrésar fór fram 27. mars 2024. Meira  Kaupa minningabók
2. apríl 2024 | Minningargreinar | 603 orð | 1 mynd

Auður Ellertsdóttir

Auður Ellertsdóttir fæddist 21. maí 1935. Hún lést 10. mars 2024. Útför Auðar fór fram 20. mars 2024. Meira  Kaupa minningabók
2. apríl 2024 | Minningargreinar | 978 orð | 1 mynd

Hörður Þorsteinsson

Hörður Þorsteinsson fæddist 4. september 1952. Hann lést 29. febrúar 2024. Útförin fór fram 21. mars 2024. Meira  Kaupa minningabók
2. apríl 2024 | Minningargreinar | 2503 orð | 1 mynd

Ingvi Rafn Jóhannsson

Ingvi Rafn Jóhannsson, rafvirkjameistari og söngvari, fæddist á Akureyri 1. janúar 1930. Hann lést 13. mars 2024. Foreldrar hans voru hjónin Jóhann Ó. Haraldsson, tónskáld og endurskoðandi KEA, og Þorbjörg Stefánsdóttir, sem lést úr berklum þegar Ingvi var tæplega tveggja ára Meira  Kaupa minningabók
2. apríl 2024 | Minningargreinar | 709 orð | 1 mynd

Jóel Halldór Jónasson

Jóel Halldór Jónasson fæddist 26. október 1944. Hann lést 16. mars 2024. Útför hans fór fram 27. mars 2024. Meira  Kaupa minningabók
2. apríl 2024 | Minningargreinar | 1603 orð | 1 mynd

Jón Pétursson

Jón Pétursson fæddist í Reykjavík 4. nóvember 1936. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Sólvöllum á Eyrarbakka 22. mars 2024. Foreldrar hans voru Guðrún Hanna Jónsdóttir húsfreyja á Vatnsstíg 4 Reykjavík, f Meira  Kaupa minningabók
2. apríl 2024 | Minningargrein á mbl.is | 992 orð | 1 mynd | ókeypis

Jón Pétursson

Jón Pétursson fæddist í Reykjavík 4. nóvember 1936. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Sólvöllum á Eyrarbakka 22. mars 2024. Foreldrar hans voru Guðrún Hanna Jónsdóttir húsfreyja á Vatnsstíg 4 Reykjavík, f. 7.3. 1904, d. 2.11. Meira  Kaupa minningabók
2. apríl 2024 | Minningargreinar | 471 orð | 1 mynd

Sif Hjartardóttir

Sif Hjartardóttir fæddist 27. september árið 1967. Hún lést 28. febrúar 2024. Útför hennar fór fram 15. mars 2024. Meira  Kaupa minningabók
2. apríl 2024 | Minningargreinar | 1462 orð | 1 mynd

Sigurbjörn Jóhann Karlsson

Sigurbjörn Jóhann Karlsson fæddist 29. júlí 1957. Hann lést 13. mars 2024. Útförin fór fram 23. mars 2024. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

2. apríl 2024 | Viðskiptafréttir | 229 orð

Google mun eyða huliðshams-gögnum

Dómstóll í San Francisco birti á mánudag sátt sem Google gerði til að binda enda á hópmálsókn frá árinu 2020 þar sem fyrirtækinu var gefið að sök að hafa safnað upplýsingum um nethegðun einstaklinga sem notuðu Chrome-vafrann á huliðshams-stillingu (e Meira
2. apríl 2024 | Viðskiptafréttir | 373 orð | 1 mynd

Jákvæðni í garð Tesla hefur dalað

Viðhorfskönnun markaðsrannsóknafélagsins Caliber bendir til minnkandi hrifningar bandarískra neytenda í garð rafbílaframleiðandans Tesla. Meira
2. apríl 2024 | Viðskiptafréttir | 234 orð | 1 mynd

Teams og Office verða aðskilin

Til að reyna að komast hjá sekt frá evrópskum samkeppnisyfirvöldum hefur bandaríski tæknirisinn Microsoft ákveðið að aðgreina spjall- og myndsímtalaforritið Teams frá öðrum Office-hugbúnaði. Mun Teams því verða selt og markaðssett sem sjálfstæð vara … Meira

Fastir þættir

2. apríl 2024 | Í dag | 59 orð

„[H]ún greindi frá því að honum langaði til að hjálpa sér að hætta…

„[H]ún greindi frá því að honum langaði til að hjálpa sér að hætta að reykja.“ Best þætti manni að hann langaði til þess sem hann langar til Meira
2. apríl 2024 | Dagbók | 89 orð | 1 mynd

Gáfu út ábreiðu af kántrípopplagi

Tónlistarmennirnir Gunnar Þór Eggertsson og Erna Hrönn Ólafsdóttir ræddu nýja lagið sem þau gáfu út, Þrái þig að fá. Gunnar Þór var áður í hljómsveitunum Vinum vors og blóma og Landi og sonum en er nú í hljómsveitinni Næslandi Meira
2. apríl 2024 | Í dag | 425 orð

Geng út í gróandi vorið

Á Boðnarmiði yrkir Magnús Halldórsson við ljósmynd af veislumat: Úti þegar er mjög kalt, eldar maður veislukosti. Blessuð sleppan bætir allt, bara'ef maður sleppir osti. Og áfram yrkir hann: Ekkert hefur fennt í fjöll og farinn klaki' að sjatna Meira
2. apríl 2024 | Í dag | 286 orð | 1 mynd

Guðmundur Þórir Ingólfsson

50 ára Guðmundur Þórir er uppalinn í Njarðvík og gekk í Grunnskóla Njarðvíkur. Á unglingsárum fór hann í sveit í Ásatúni í Hrunamannahreppi og þaðan á hann góðar minningar. Hann fór í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og útskrifaðist sem rafvirki árið 1996 auk þess að ljúka sveinsprófi í rafvirkjun Meira
2. apríl 2024 | Í dag | 889 orð | 3 myndir

Margbreytilegar rannsóknir

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson fæddist á Akureyri 1. apríl 1954 og varð því sjötugur í gær. „Faðir minn dó þegar ég var tveggja ára. Móðir mín giftist aftur þegar ég var fjögurra ára og eftir það ólst ég upp á Skútustöðum í Mývatnssveit með… Meira
2. apríl 2024 | Í dag | 162 orð | 1 mynd

Skák

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 b5 6. Bb3 Bc5 7. c3 d6 8. d4 Bb6 9. a4 Hb8 10. Be3 0-0 11. He1 He8 12. Rbd2 h6 13. axb5 axb5 14. h3 exd4 15. cxd4 Rb4 16. d5 Rd3 17. He2 Rxb2 18. Dc2 Ra4 19 Meira
2. apríl 2024 | Í dag | 175 orð

Tölvugreind. A-AV

Norður ♠ K72 ♥ ÁG983 ♦ ÁK3 ♣ G2 Vestur ♠ D ♥ K762 ♦ DG107 ♣ D97 Austur ♠ G1053 ♥ D105 ♦ 84 ♣ 10864 Suður ♠ Á9864 ♥ 2 ♦ 652 ♣ ÁK53 Suður spilar 6♠ Meira

Íþróttir

2. apríl 2024 | Íþróttir | 603 orð | 4 myndir

Albert Guðmundsson skoraði sitt 11. mark fyrir Genoa í ítölsku A-deildinni…

Albert Guðmundsson skoraði sitt 11. mark fyrir Genoa í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu á þessu tímabili þegar liðið gerði jafntefli, 1:1, við Frosinone á laugardaginn Meira
2. apríl 2024 | Íþróttir | 699 orð | 3 myndir

Forréttindi að vera í þessari stöðu

„Þetta var frábær tilfinning,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari karlaliðs Vals í handbolta, í samtali við Morgunblaðið um sigurinn á Steaua Búkarest frá Rúmeníu í átta liða úrslitum Evrópubikarsins Meira
2. apríl 2024 | Íþróttir | 147 orð | 1 mynd

Góður sigur Magdeburg

Magdeburg styrkti stöðu sína í einvíginu við Füchse Berlín um þýska meistaratitilinn í handknattleik á páskadag með því að sigra Eisenach örugglega á útivelli, 35:25. Magdeburg er með 46 stig, stigi á eftir Füchse, en á leik til góða Meira
2. apríl 2024 | Íþróttir | 117 orð | 1 mynd

Ingvar tryggði Víkingi bikarinn

Víkingar lögðu Valsmenn í vítaspyrnukeppni í uppgjöri Reykjavíkurliðanna um Meistarabikar KSÍ 2024 á Víkingsvellinum í gærkvöld. Staðan var 1:1 eftir venjulegan leiktíma en Valsmenn gerðu sjálfsmark eftir aðeins 38 sekúndur, eftir sendingu Erlings Agnarssonar inn að markinu Meira
2. apríl 2024 | Íþróttir | 379 orð | 2 myndir

Liverpool náði forskoti

Liverpool stendur best að vígi í baráttunni við Arsenal og Manchester City um enska meistaratitilinn í knattspyrnu eftir leiki páskadags. Þar vann Liverpool sigur á Brighton, 2:1, á Anfield á meðan City og Arsenal gerðu markalaust jafntefli á… Meira
2. apríl 2024 | Íþróttir | 133 orð | 1 mynd

Slógu báðar Íslandsmetið í San Marcos

ÍR-ingarnir Elísabet Rut Rúnarsdóttir og Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir náðu þeim glæsilega árangri um helgina að slá báðar Íslandsmet Elísabetar í sleggjukasti kvenna og enduðu um leið í tveimur efstu sætum greinarinnar á Bobcat Invitational-mótinu sem fram fór í San Marcos í Texas Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.