Syndsamlegur sítrónukjúklingur með mascarpone-osti

Hún Sigurlaug er einstaklega lekker og mikill sælkeri. Takið eftir …
Hún Sigurlaug er einstaklega lekker og mikill sælkeri. Takið eftir hvað hráefnið virkar vel sem borðskreyting. mbl.is/Albert Eiríksson

Albert Eiríksson fór í syndsamlegt sítrónuboð til útvarpskonunnar dásamlegu Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur. „Ekki aðeins er hún snilldarkokkur, heldur verður andrúmsloftið létt og frjálslegt í kringum hana, þar sem allt virðist auðvelt og flest verður tilefni húmors og gjallandi hláturs,“ segir Albert í nýrri færslu á blogginu sínu.

„Í matarboðinu komu Ítalía og sítrónur mikið við sögu. „Að halda veislu með þema getur verið sérlega skapandi og ánægjulegt, til dæmis er hægt að fá hugmyndir með því að fletta upp nokkrum myndum eftir Matisse, þar sem hann málar sítrónur af kátínu! Við byrjum hins vegar á tómat- og basil brúskettu, svona til að hafa afsökun til að drekka freyðivín!!” segir útvarpskonan geðþekka.“

Kjúklingur með mascarpone-osti, sítrónusafa- og berki
F 4

10 kjúklingabitar með skinni (veljið þá bita sem ykkur þykir góðir)
1 dós mascarpone-ostur (við stofuhita, þá er betra að hræra hann saman við kryddið og sítrónuna)
ferskar kryddjurtir (timian, oreganó og rósmarín)
safi úr 1 1/2 sítrónu
börkur af einni sítrónu, rifinn
salt og pipar

Blandið saman mascarpone, ferskum kryddjurtum, sítrónusafa og berki, hrærið vel saman.
Þerrið kjúklingabitana og setjið ostablönduna undir skinnið. Klárið þó ekki alla ostablönduna, því að afganginn á að nota í sósuna.

Raðið bitunum á grind, saltið og piprið og steikið við 180°C í u.þ.b. 30 mín.

Sósa
Hitið afganginn af ostablöndunni, bætið við krafti (af kjúklingabitunum), sítrónusafa og sítrónuberki. Látið malla í stutta stund.

Sitrónupartý í hæstu hæðum.
Sitrónupartý í hæstu hæðum. mbl.is/ Albert Eiríksson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert