Unaðslega góð kjúklingaspjót á grillið

Unaðslega góð kjúklingaspjót sem tekur örskamma stund að útbúa.
Unaðslega góð kjúklingaspjót sem tekur örskamma stund að útbúa. Samsett mynd

Þessa dagana er fátt skemmtilegra en að bjóða upp á girnilega grillaða rétti sem eru bæði einfaldir og hagkvæmir. Matarbloggarinn Vesela Asenova sem heldur úti Instagram reikningum @vessys_gourmet_kitchen deildi með fylgjendum sínum uppskrift að þessum unaðslega góðu kjúklingaspjótum sem tekur örskamma stund að gera. Kjúklingaspjótin er safarík, mjúk og bragðgóð. Kjúklingurinn er maríneraður með sítrónu, hvítlauk, steinselju og parmesan-osti. Kryddaður til með pipar, salti og chiliflögum. Spjótin eru tilvalin til að njóta með salati eða hvaða meðlæti sem hugurinn girnist eða þá bara ein og sér.

Kjúklingaspjót með sítrónu, hvítlauk og parmesanosti

  • 1 p grillspjót
  • 1 kg kjúklingalundir
  • ½  bolli ólífuolía
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 msk. fersk steinselja, söxuð
  • ½ sítróna, safinn og sítrónubörkur
  • 3 msk.parmesan-ostur, rifinn
  • 1 tsk. salt
  • Svartur pipareftir smekk
  • Smoky chiliflögur eftir smekk

Aðferð:

  1. Leggið tréspjótin í vatn til að tryggja að þau brenni ekki.
  2. Skerið lundirnar í bita sem eru um það bil sömu stærðar.
  3. Útbúið maríneringuna, blandið saman ólífuolíu, sítrónuberki, sítrónusafa, hvítlauk, steinselju, parmesan-osti, pipar og chiliflögum og hrærið vel saman.
  4. Hellið maríneringunni yfir kjúklingabitana en takið smá til hliðar til að pensla eftir eldun.
  5. Þræðið kjúklingabitana upp á spjótin.
  6. Grillið við meðalhita á báðum hliðum þar til kjúklingaspjótin eru elduð.
  7. Penslið afgangnum af marineringunni á spjótin eftir grillun.
  8. Berið fram og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert