Heitt ítalskt kartöflusalat sem þú átt eftir að elska

Valgerður Gréta Gröndal sælkeri, ávallt kölluð Jana, býður upp á …
Valgerður Gréta Gröndal sælkeri, ávallt kölluð Jana, býður upp á þetta dásamlega heita kartöflusalat með ítölsku ívafi. Samsett mynd

Kartöflur í öllum útgáfum eru góðar, þannig er það bara. Hvort sem þær eru soðnar, bakaðar, grillaðar eða djúpsteiktar. Nýjar uppteknar kartöflur og smælki er einstaklega gott og þessa dagana er ný uppskera af kartöflum farin að skila sér. Eitt sem ákaflega gott er kartöflusalat og nú er lag að útbúa slíkt úr nýrri uppskeru.

Hér er uppskrift að alveg geggjuðu kartöflusalati sem er borið fram heitt og kemur úr smiðju Valgerðar Grétu Gröndal, sem alla jafna er kölluð Valla. Valla heldur úti uppskriftasíðunno sem ber heitið Valla Gröndal. Kartöflusalatið er með ítölsku ívafi með sólþurrkuðum tómötum, chilli pestói og parmesan osti. Valla byrjar á því að forsjóða kartöflurnar í vel söltu vatni en klára að baka þær í ofni með öðrum dásamlegum hráefnum.

Gott með grilluðum kjúkling

Ég borða þetta kartöflusalat eitt og sér með góðu brauði eða ber það fram sem meðlæti með grilluðum kjúkling til dæmis. Sólþurrkuðu tómatarnir frá Sacla ásamt chili pestóinu gefa kartöflunum alveg sérstaklega gott bragð og ólífurnar og parmesan osturinn setja punktinn yfir i-ið. Þetta verðið þið að prófa næst þegar þið grillið,“ segir Valla spennt. 

Þetta er svona kartöflusalat sem nær til matarhjartans og þú átt eftir að elska.

Heitt ítalskt kartöflusalat með sólþurrkuðum tómötum, chilli pestó og parmesan osti

  • 700 g nýjar kartöflur skornar í bita
  • 1 msk. ólífuolía
  • 4 msk. Chili pestó frá Sacla eða chili pestó að eigin vali
  • 10 sneiðar sólþurrkaðir tómatar
  • 1 dl grænar ólífur skornar í sneiðar
  • ½ rauðlaukur skorinn í sneiðar
  • 3-4 msk. rifinn parmesan ostur
  • 2 msk. söxuð fersk steinselja
  • Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Skerið kartöflurnar í 4 bita eða 8 ef þær eru mjög stórar. Setjið þær í pott og látið kalt vatn renna í pottinn þar til það er komið aðeins yfir kartöflurnar.
  2. Saltið vatnið ríflega, setjið pottinn á hellu og leyfið suðunni að koma upp. Lækkið þá niður og sjóðið í 15 mínútur.
  3. Hitið ofninn í 200°C blástur.
  4. Hellið úr pottinum í sigti og veltið kartöflunum í sigtinu þar til yfirborðið á kartöflunum fer að ýfast aðeins.
  5. Setjið eldhúspappír á bretti og setjið kartöflurnar á það.
  6. Þerrið kartöflurnar og setjið í skál.
  7. Dreifið ólífuolíunni yfir ásamt tveimur matskeiðum af pestóinu. Veltið og setjið í eldfast mót. Setjið inn í ofn og bakið í 10 – 15 mínútur.
  8. Á meðan kartöflurnar eru í ofninum takið þá sólþurrkuðu tómatana úr krukkunni og þerrið með eldhúspappír, skerið í bita.
  9. Skerið laukinn og ólífurnar í sneiðar og saxið steinseljuna.
  10. Þegar tíminn er liðinn á kartöflunum takið þá formið út og dreifið lauknum, sólþurrkuðu tómötunum, ólífunum og fersku steinseljunni yfir kartöflurnar.
  11. Raspið vel af parmesan osti yfir og saltið og piprið.
  12. Blandið saman með stórri skeið og bakið áfram í ofninum í 5-10 mínútur.
  13. Berið fram með grilluðum kjúklingum eða hverjum sem hugurinn girnist.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert