Atvinnumaðurinn orkubomba fyrir lengra komna

Hér er hin fullkomna orkubomba, stúttfull að góðri næringu fyrir …
Hér er hin fullkomna orkubomba, stúttfull að góðri næringu fyrir líkama og sál. Ljósmynd/Sölufélag garðyrkjumanna

Þessi orkubomba kemur úr smiðju Margrétar Leifsdóttur heilsumarkþjálfa og heitir Atvinnumaðurinn. Þetta er hin fullkomna bomba fyrir þá sem eru lengra komnir í hollustu drykkjunum og þrá í enn meiri orku úr morgunþeytingnum. Ef ykkur langar að hefja daginn á alvöru orku þá er þetta drykkurinn.

Atvinnumaðurinn

  • 1 grænt íslenskt potta- eða pokasalat
  • 2 stönglar sellerí með laufunum
  • 2 meðalstórar gulrætur
  • ½ gúrka
  • ½ rófa
  • 1 avókadó
  • 2,5 cm engifer
  • 2 græn epli
  • 0,5 l kalt vatn og handfylli klakar

Aðferð:

  1. Allt sett í blandara og blandað vel.
  2. Hellið og stórt og gott glas og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert