Sigurjón sigraði Whitley Neill kokteilkeppnina

Gleðin var í fyrirrúmi á Whitley Neill kokteilkeppninni.
Gleðin var í fyrirrúmi á Whitley Neill kokteilkeppninni. Samsett mynd

Síðastliðið miðvikudagskvöld fór fram stórglæsileg kokteilkeppni á vegum Whitley Neill og Innnes. Þema keppninnar var Long Drink og voru 28 keppendur sem tóku þátt.

„Það var gaman að sjá að fulltrúa frá 16 veitingastöðum og börum töfra fram stórglæsilega gin kokteila,“ segir Jóhanna Ýr Hallgrímsdóttir markaðstjóri hjá Innnes. Hjálmar Örn stýrði kvöldinu eins og honum einum er lagið og hélt uppi stuðinu. Áhorfendum gafst síðan kostur á að smakka breytt úrval af Whitley Neill gini og voru einnig stórglæsilegar veitingar í boði sem starfsmenn Innnes framreiddu.

Úrslit kvöldsins voru eftirfarandi:

  1. Sigurjón Tómas Hjaltason frá Rvk Cocktails
  2. Robert Proppé frá Drykk Bar - Pósthús Mathöll
  3. Guðrún Björk Geirsdóttir frá BerjayaIceland Hotels

Frumlegasti kokteilinn átti Kría frá Tipsý bar.

Dómnefndina skipuðu:

  • Georg Leite frá Kalda Bar
  • Kristín Ruth útvarpskona á FM957
  • Ómar Vilhelmsson frá Barþjónaklúbb Íslands
  • Edward Williamson frá Halewood / Whitley Neill

„Við erum alsæl með hversu vel tókst til og þökkum öllum keppendum kærlega fyrir þátttökuna og sérstakar þakkir til Barþjónaklúbbs Íslands fyrir aðstoðina,“ segir Jóhanna.

Hér má sjá myndir frá kokteilakeppninni sem lýsa vel stemningunni sem var loftinu.

Sigurjón Tómas Hjaltason sigraði keppnina með þessum litríka og skemmtilega …
Sigurjón Tómas Hjaltason sigraði keppnina með þessum litríka og skemmtilega kokteil. Ljósmynd/Rebekka Rut Marinósdóttir
Robert Proppé frá Drykk bar Pósthús Mathöll hlaut 2.sætið og …
Robert Proppé frá Drykk bar Pósthús Mathöll hlaut 2.sætið og tók við viðurkenningu frá Edward frá Halewood Whitley Neill. Ljósmynd/Rebekka Rut Marinósdóttir
3 sætið hlaut Guðrún Björk Geirsdóttir frá Berjaya Iceland hotels. …
3 sætið hlaut Guðrún Björk Geirsdóttir frá Berjaya Iceland hotels. Hér er hún með Edward frá Halewood Whitley Neill sem afhenti henni verðlaunin. Ljósmynd/Rebekka Rut Marinósdóttir
Dómnefndina skipuðu Ómar Vilhelms, Kristín Ruth, Georg Leite og Edward …
Dómnefndina skipuðu Ómar Vilhelms, Kristín Ruth, Georg Leite og Edward Williamson. Ljósmynd/Rebekka Rut Marinósdóttir
Sigurjón frá Reykjavík Cocktails tekur við sigurverðlaununum hjá Edward frá …
Sigurjón frá Reykjavík Cocktails tekur við sigurverðlaununum hjá Edward frá Halewood Whitley Neill. Ljósmynd/Rebekka Rut Marinósdóttir
Líf og fjör á barnum hjá Sigurjóni.
Líf og fjör á barnum hjá Sigurjóni. Ljósmynd/Rebekka Rut Marinósdóttir
Vinningskokteillinn.
Vinningskokteillinn. Ljósmynd/Rebekka Rut Marinósdóttir
Kría frá Tipsý bar átti fumlegasti drykkinn og tekur hér …
Kría frá Tipsý bar átti fumlegasti drykkinn og tekur hér við viðurkenningu frá Edward. Hjálmar Örn var kynnir kvöldsins. Ljósmynd/Rebekka Rut Marinósdóttir
Glæsiegar veitingar voru í boðið sem starfsmenn Innnes framreiddu.
Glæsiegar veitingar voru í boðið sem starfsmenn Innnes framreiddu. Ljósmynd/Rebekka Rut Marinósdóttir
Fjölbreytt úrval að alls konar kræsingum var í boði.
Fjölbreytt úrval að alls konar kræsingum var í boði. Ljósmynd/Rebekka Rut Marinósdóttir
Ljósmynd/Rebekka Rut Marinósdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert