Mjólkurlaus súkkulaðipáskaegg fyrir bragðarefi

Anna Guðný Torfadóttir heilsumarkþjálfi býður lesendum upp á uppskrift að …
Anna Guðný Torfadóttir heilsumarkþjálfi býður lesendum upp á uppskrift að mjólkurlausum súkkulaðipáskaeggjum. Samsett mynd

Nú þegar styttist í páskahátíðina sem sumir kalla hátíð bragðarefanna. Þar eru súkkulaðieggin gjarnan í forgrunni og allir súkkulaðiunnendur bíða spenntir að finna sitt uppáhalds til að njóta um hátíðirnar. Margir versla sér sitt draumaegg og sumir búa til sitt eigið. Anna Guðný Torfadóttir heilsumarkþjálfi og jógakennari sem heldur úti lífsstílssíðunni Heilsa og vellíðan gerir sitt eigið páskaegg og vill hafa það án sætu og mjólkurvara.

„Í tilefni þess að páskahátíðin nálgast óðfluga fannst mér tilvalið að deila með lesendum matarvefs mbl.is uppskrift að heimagerðum páskaeggjum sem eru bæði laus við unna sætu og mjólkurvörur,“ segir Anna með bros á vör.

Besta sem ég hef smakkað

„Ég ákvað að fara að gera tilraunir í eldhúsinu og útbúa mitt eigið páskaegg. Þetta súkkulaði er með því betra sem ég hef gert og mun það eflaust verða til í frystinum reglulega hjá mér hér eftir. Það minnir bara heilmikið á þetta hefðbundna páskaeggjamjólkursúkkulaði og er það besta sem ég hef smakkað.“

Önnu finnst samverustundin við páskaeggjagerðina ekki síðri en að njóta góðgætisins. „Ástæðan fyrir því að ég vil útbúa mín eigin páskaegg er sú að mér finnst það mjög skemmtileg samverustund með barninu mínu en einnig að geta verið algjörlega meðvituð um hvaða hráefni páskaeggið mitt inniheldur. Ég hef ekki enn þá fundið það páskaegg úti í búð sem er bæði mjólkurlaust og inniheldur ekki unna sætu. Sjálf hef ég lifað sykurlausum lífsstíl í meira en 10 ár og það skiptir mig miklu máli að halda áfram að njóta alls kyns góðgætis á heilnæman máta. Fyrir mig sjálfa hefur það verið mér afar mikið gæfuspor að hreinsa mataræðið mitt af unninni sætu og hef ég lagt mikið upp úr því að næra barnið mitt á sem hreinastan máta. Í dag er það mér hjartans mál að hjálpa fólki að taka þetta spor og leyfa því að upplifa hvað gerist þegar maður hreinsar mataræðið sitt af helstu óþolsvöldum. Auðvitað erum við öll ólík og hver og einn verður að hlusta á sinn líkama, en ég fann alltaf á mér hér áður fyrr að ég varð þreytt, orkulaus og verkjuð í líkamanum þegar ég var að borða unna sætu, glúten og mjólkurvörur. Það sem ég fann mest fyrir með sykurinn er að ég upplifði mikla fíkn í meiri sykur og meira ruslfæði.“

Falleg eggin hennar Önnu Guðnýjar.
Falleg eggin hennar Önnu Guðnýjar. Ljósmynd/Anna Guðný Torfadóttir

Frábært að gera sitt eigið páskaegg

„Það sem er frábært við að gera sitt eigið páskaegg er að þú getur smakkað súkkulaðið til sjálf/ur, sett það nammi sem þú vilt í páskaeggið og valið þér páskaeggjaform í þeirri stærð sem þig lystir til. Ég keypti mitt form í Söstrene Grene á sínum tíma en er ekki með það á hreinu hvort það fáist svoleiðis þar í dag. Mig grunar þó sterklega að svona form fáist í Kökuhúsinu,“ segir Anna og bætir við að það sé mun auðveldara að gera sitt eigið egg en marga grunar. „Vert er að geta þess að ég notaði kókosmjólk í dós sem var við stofuhita. Ég hristi hana áður en ég opnaði hana og þá varð hún þykkari og kremaðri en kókosmjólk sem að maður notar til drykkjar. Einnig er mikilvægt að nefna það að ef þú finnur ekki kasjúhnetusmjör þá kemur möndlusmjör örugglega vel út í staðinn, það má ávallt finna lausnir við öllu,“ segir Anna að lokum og deilir hér með lesendum uppskriftinni að sínu uppáhaldspáskaeggi.

Í eggjunum eru málshættir og hollustu nammi eins og hnetur …
Í eggjunum eru málshættir og hollustu nammi eins og hnetur og þurrkaðir ávextir. Ljósmynd/Anna Guðný Torfadóttir

Mjólkurlaus súkkulaðipáskaegg

  • 100 ml kókosolía
  • 50 ml kakósmjör
  • 60-70 ml döðlusíróp
  • 3,5 msk. kakó
  • 2 msk. kókosmjólk*
  • 1 msk. kasjúhnetusmjör**
  • ½ tsk. vanilluduft
  • Gróft salt

Aðferð:

  1. Byrjið á því að bræða kókosolíuna og kakósmjörið. Leyfið þessu að ná stofuhita.
  2. Hrærið síðan öllum innihaldsefnunum saman með písk í skál.
  3. Leyfið súkkulaðinu að kólna aðeins, það er gott að setja það jafnvel á aðeins kaldari stað eins og t.d. út í glugga eða örstutt inn í ísskáp. Þá nær það að þykkna aðeins og það verður auðveldara að smyrja páskaeggjaformið með því.
  4. Anna notaði páskaeggjasilikonform.
  5. Gott er að setja páskaeggjaformið í frystirinn áður en maður setur súkkulaðið í það. Þegar að súkkulaðið hefur orðið aðeins þykkara þá setjið þið súkkulaðið ofan í með skeið og passið að það sé nóg af því á alla kanta.
  6. Ef að þið hafið ekki þolinmæði til að bíða eftir að súkkulaðið kólni þá getið þið alveg sett það í formið strax en þið þurfið þá að gera margar umferðir og að snúa forminu á alla kanta til að súkkulaðið nái á allar hliðar eggsins. Þið setjið síðan smá súkkulaði í, frystið takið út aftur og setjið meira, frysti aftur o.s.frv.
  7. Lykilatriði er að hafa nógu mikla þykkt af súkkulaði á efstu brúninni, um það bil 0,4 cm, svo að það sé ekki brothætt þegar að þið takið það úr forminu.
  8. Þegar að eggin eru tilbúin í forminu, takið þau þá varlega úr og festið þau saman með því að setja brædd súkkulaði á samskeytin.
  9. Sniðugt er að setja litla málshætti í eggin, uppáhaldshneturnar ykkar, þurrkaða ávexti eða hvað sem ykkur dettur í hug að setja inn í eggin. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert