Boltastrákur neitaði að afhenda leikmanni stólinn (myndskeið)

Boltastrákur Newcastle neitaði að afhenda Mohammed Kudus, leikmanni West Ham, stólinn sinn er hann fagnaði marki í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. 

Kudus kom West Ham yfir, 2:1, og ætlaði sér að fagna eins og hann gerir að vanda, með að setjast á stól. 

Bað hann boltastrák Newcastle um stól sem hann sat á, en strákurinn neitaði. 

West Ham er yfir, 3:1, þegar rúmar 20 mínútur eru eftir en myndskeið af atvikinu má sjá hér að ofan. Mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert