Sá markahæsti ekki með gegn City

Ollie Watkins í leik með Aston Villa.
Ollie Watkins í leik með Aston Villa. AFP/Adrian Dennis

Enski knattspyrnumaðurinn Ollie Watkins, sóknarmaður Aston Villa, verður fjarri góðu gamni vegna meiðsla þegar liðið heimsækir ríkjandi Englandsmeistara Manchester City í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld.

Unai Emery, knattspyrnustjóri Villa, greindi frá á fréttamannafundi í dag en sagði þó ekki um alvarleg meiðsli að ræða.

„Þetta eru bara smávægileg meiðsli hjá Ollie og því gæti hann verið klár í slaginn fyrir leikinn á laugardag,“ sagði Emery.

Villa fær Brentford í heimsókn í deildinni á laugardag þar sem Watkins, sem hefur skorað 16 mörk og lagt upp tíu í 30 deildarleikjum á tímabilinu, gæti snúið aftur.

Er hann markahæsti leikmaður Villa á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert