Þreföld skipting í fyrri hálfleik (myndskeið)

Marco Silva, knattspyrnustjóra Fulham, var ekki skemmt þegar lið hans var lent 2:0 undir eftir aðeins 19 mínútna leik gegn Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Hvorki gekk né rak hjá Fulham í fyrri hálfleiknum. Leiddist Silva þófið og ákvað að taka þrjá leikmenn af velli eftir aðeins 33 mínútna leik.

Harry Wilson, Alex Iwobi og Sasa Lukic máttu gjöra svo vel að víkja fyrir Willian, Adama Traoré og Tom Cairney. Var enginn af þremenningunum að glíma við meiðsli.

Ekki batnaði leikur liðsins mikið við skiptingarnar þar sem staðan í hálfleik var 3:0, Forest í vil. Staðan er 3:1 þegar þetta er ritað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert