Von á þriðja barni Beckham-hjónanna í lok febrúar

Victoria Beckham fylgist með Beckham leika með enska landsliðinu ásamt …
Victoria Beckham fylgist með Beckham leika með enska landsliðinu ásamt Romeo, syni þeirra hjóna. AP

Fyrrum Kryddpían Victoria Beckham hefur greint frá því að von sé á þriðja barni hennar og David Beckham 25. febrúar nk., að því er fram kemur í frétt Ananova. Barnið á að koma í heiminn á sjúkrahúsi í Madríd, höfuðborg Spánar og hefur Victoria leigt heila hæð á sjúkrahúsinu svo tryggt sé að þau hjónin fái að vera út af fyrir sig þegar stóra stundin rennur upp.

Fram kemur í tímaritinu Heat að Beckham-hjónin hafi viljað tryggja að þau fái algert næði meðan þau dveljast á Ruber Internacional sjúkrahúsinu. Victoria mun hafa þurft að berjast hart fyrir því að fá að leigja heila hæð á sjúkrahúsinu.

„Victoria vildi upphaflega láta taka frá heila hæð fyrir sig,“ segir heimildamaður í samtali við Heat. „Yfirmenn sjúkrahússins sögðu henni hins vegar að ekki einu sinni spænska konungsfjölskyldan hlyti sérmeðferð af því tagi.“ „Þau David sögðu sjúkrahúsinu að þau vildu ekki hafa neinar aðrar mæður í námunda við sig og að þau vildu hafa algeran frið meðan á fæðingunni stæði, en þrátt fyrir þetta mættu þau andstöðu.“ „Victoriu tókst hins vegar að hafa sitt fram - eftir að hafa greitt 150.000 pund,“ sagði heimildamaðurinn, en sú upphæð samsvarar um 17,5 milljónum íslenskra króna.

Fyrir eiga David og Victoria tvo unga syni, Brooklyn og Romeo.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt vont með að losna við tiltekna hugmynd úr kollinum þessa dagana. Mundu að ekkert er þess virði að missa heilsuna fyrir það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú átt vont með að losna við tiltekna hugmynd úr kollinum þessa dagana. Mundu að ekkert er þess virði að missa heilsuna fyrir það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir