Dökkhærðar konur í fimm efstu sætunum á lista yfir þær fallegustu í heimi

Nýkjörin Ungfrú alheimur, kanadíska stúlkan Natalie Glebova, er dökkhærð.
Nýkjörin Ungfrú alheimur, kanadíska stúlkan Natalie Glebova, er dökkhærð. AP

Dökkhærðar konur skutu ljóshærðum kynsystrum sínum ref fyrir rass á lista tímaritsins Harpers & Queen yfir fallegustu konur í heimi. Angelina Jolie trónar á toppnum, og næstar koma ofurmódelið Christy Turlington, Rania Jórdaníudrottning, kvikmyndaleikstjórinn Sofia Coppola og matreiðslukonan Nigella Lawson.

Það voru eitt þúsund sérfræðingar úr heimi tísku, lista og fjölmiðla sem völdu á listann, að því er Ananova greinir frá.

Ljóshærðar konur eins og Kate Moss, Uma Thurman og Scarlett Johansson eru á listanum, en ekki í neinu af fimm efstu sætunum. Ritstjóri tímaritsins, Lucy Yeomans, sagði: „Við urðum virkilega hissa þegar dökkhærðar konur urðu í efstu sætunum. En niðurstöðurnar sýna afdráttarlaust brotthvarf frá hefðbundinni upphafningu ljóshærðra kvenna. Þess í stað ber nú meira á fólki sem hefur sérstæða fegurð.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér finnst kannski að einhver í vinnunni sé að segja þér ósatt og líklega er það rétt mat hjá þér. Mundu að þú ert sjálfur gæddur þeim hæfileikum sem duga þér til árangurs.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér finnst kannski að einhver í vinnunni sé að segja þér ósatt og líklega er það rétt mat hjá þér. Mundu að þú ert sjálfur gæddur þeim hæfileikum sem duga þér til árangurs.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav