Þrjú ár liðin frá hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin

Reyk leggur frá turnum World Trade Center í New York …
Reyk leggur frá turnum World Trade Center í New York skömmu eftir árásirnar 11. september 2001. AP

Þrjú ár eru í dag liðin frá því hryðjuverkárásirnar voru gerðar á Bandaríkin og verða ýmsar athafnir þar í landi í dag til að minnast þeirra sem létu lífið. Munu George W. Bush, Bandaríkjaforseti, og Laura kona hans m.a. stýra stuttri athöfn í Rósagarðinum við Hvíta húsið klukkan 12:46 að íslenskum tíma en þá lenti farþegavél á öðrum turni World Trade Center í New York þann 11. september 2001.

Dagskráin í höfuðborg Bandaríkjanna hefst með bæna- og minningarstund í kirkju skammt frá Hvíta húsinu en Bush-hjónin munu síðan stýra minningarathöfninni í Rósagarðinum þar sem m.a. verður mínútu þögn til minningar um þá sem létust.

Um klukkustundu síðar mun Bush flytja vikulegt útvarpsávarp sitt beint frá Hvíta húsinu og hefur ættingjum fórnarlamba árásanna, slökkviliðsmönnum og öðrum björgunarmönnum verið boðið þangað. Bush mun minnast þeirra sé létu lífið, þakka hermönnum sem berjast gegn hryðjuverkamönnum og lýsa ráðstöfunum sem gerðar hafa verið til að reyna að koma í veg fyrir frekari árásir af þessu tagi.

Bush hefur skrifað undir yfirlýsingar um að 11. september verði bænadagur í Bandaríkjunum og að dagurinn verði nefndur föðurlandsvinadagurinn.

John Kerry, forsetaefni demókrata, verður viðstaddur minningarathöfn í heimaborg sinni Boston.

Minningarathafnirnar í dag undirstrika hve mikið forskot forseti hefur í kosningabaráttu í Bandaríkjunum. Bush hefur lagt höfuðáherslu á baráttuna gegn hryðjuverkum í kosningabaráttunni og getur komið þeirri áherslu á framfæri í dag án þess að þurfa að minnast á kosningarnar eða andstæðing sinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert