Um 20 þúsund mótmæla stríðinu í Írak í London

Frá mótmælagönginni í London
Frá mótmælagönginni í London AP

Talið er að um tuttugu þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælagöngu gegn stríðinu í Írak í Lundúnaborg í dag. Var mótmælagangan hluti af þriggja daga ráðstefnu andstæðinga stríðs og andstæðinga hnattvæðingar víðsvegar að úr Evrópu. Meðal umræðuefna á ráðstefnunni var stríðið í Írak og komandi forsetakosningar í Bandaríkjunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert