Sharon segir brottflutning styrkja Ísrael

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, lýsti yfir því í gær að áætlun hans um brottflutning landtökumanna frá Gaza-svæðinu myndi styrkja Ísrael. Lét forsætisráðherrann þessi orð falla skömmu eftir að fréttir höfðu borist um að 14 Palestínumenn, hið minnsta, hefðu týnt lífi í gær og á sunnudag í umfangsmiklum aðgerðum Ísraelshers á Gaza-ströndinni. Ellefu ára gamall drengur var á meðal þeirra sem drepnir voru.

Palestínumennirnir voru ýmist drepnir í loftárásum eða árásum skriðdreka og stórskotaliðs í og við Khan Yunis-flóttamannabúðirnar á sunnanverðu Gaza-svæðinu. Aðgerðir þessar hófu Ísraelar seint á sunnudag en Gaza er eitt þéttbýlasta svæði í heimi hér. Var því óttast að tala látinna ætti eftir að hækka. Palestínumenn segja að 70 menn hið minnsta hafi særst í átökum þessum.

Talsmaður Ísraelshers sagði að "umsvif" liðsaflans við Khan Yunis hefðu verið aukin í kjölfar þess að sprengjukúlum hefði verið skotið á byggðir landtökumanna þar nærri á undanliðnum dögum. Ísraelar beittu m.a. fjarstýrðri flugvél sem skaut eigi færri en fjórum eldflaugum. Ein hæfði varðstöð Palestínumanna og varð tveimur mönnum að bana. Óbreyttir borgarar voru sagðir hafa týnt lífi í átökum ísraelskra hermanna og skæruliða við Khan Yunis auk þess sem fullyrt var að eldflaugar Ísraela hefðu hæft íbúðarhús í flóttamannabúðunum.

Atkvæði greidd um áætlun Sharons

Árásirnar voru gerðar fáeinum klukkustundum eftir að ríkisstjórn Ísraels samþykkti að greiða bæri landtökumönnum á Gaza og fjölskyldum þeirra bætur vegna þeirrar ákvörðunar Ariels Sharons forsætisráðherra að leggja byggðir þeirra niður og kalla heraflann heim frá Gaza. Þing Ísraels, Knesset, greiðir í dag atkvæði um þá áætlun Sharons. Þykir líklegt að hún verði samþykkt jafnvel þótt allt að 18 af 40 þingmönnum Likud, flokks Sharons, greiði trúlega atkvæði gegn áætluninni. Þingmenn tveggja vinstri flokka, Verkamannaflokksins og Yahad, hyggjast styðja Sharon og því er spáð að flokkur hans kunni að klofna eftir atkvæðagreiðsluna í dag.

Sharon ver áætlun um brottflutning

Áætlun Sharons felur í sér að 8.000 landtökumenn á Gaza-svæðinu munu þurfa að yfirgefa byggðir sínar sem og nokkur hundruð þeirra til viðbótar sem tekið hafa sér land á Vesturbakkanum. Alls eru landtökumenn gyðinga um 240.000 talsins þannig að hér ræðir aðeins um rúm þrjú prósent þeirra.

Umræða um áætlun Sharons hófst á þingi í gær og sagði forsætisráðherrann að brottflutningur frá Gaza myndi "styrkja Ísrael". Hann lýsti og yfir því að brottflutningnum væri ekki ætlað að koma í stað viðræðna við Palestínumenn og myndi því ekki reynast fallinn til "að frysta" ferli það sem gangsett hefur verið í því augnamiði að stilla til friðar með Ísraelum og Palestínumönnum. Sagði forsætisráðherrann að með þessu móti myndu Ísraelar "þokast fram veginn í átt til friðarsamnings við nágranna okkar, Palestínumenn". Hét hann því að fylgja áætluninni eftir og víaði á bug ásökunum um að hann hefði blekkt kjósendur og almenning í Ísrael. "Ég sagði hreint út að ég væri fylgjandi palestínsku ríki," sagði Sharon.

Áætlun Sharons hefur orðið til þess að auka vopnaskakið á Gaza. Segja fréttamenn á staðnum að palestínskir skæruliðar hafi hert árásir sínar í því augnamiði að láta líta út sem Ísraelar hafi afráðið að hörfa þaðan. Ísraelsher sakar Palestínumenn um að hafa hert árásir sínar á byggðir landtökumanna.

4.500 manns liggja í valnum

Tala fallinna fer enda sífellt hækkandi. Réttir tíu dagar eru nú liðnir frá síðustu meiriháttar aðgerð herafla Ísraela á norðanverðu Gaza-svæðinu sem kostaði ekki færri en 107 Palestínumenn og fimm Ísraela lífið. Alls hafa nú 4.528 manns týnt lífi frá því að seinni uppreisn eða intifada Palestínumanna hófst í septembermánuði árið 2000. Af þeim sem fallið hafa eru 3.498 Palestínumenn og 956 Ísraelar.

Gazaborg. AFP.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert