Þrír á sjúkrahús eftir árekstur fólksbíls og strætisvagns

Frá slysstaðnum við Verslunarskólann í dag.
Frá slysstaðnum við Verslunarskólann í dag. mbl.is

Umferðaróhapp varð á gatnamótum við Verslunarskólann á ellefta tímanum í morgun, en þar lentu saman strætisvagn og fólksbíll. Þrír einstaklingar sem voru í fólksbílnum slösuðust nokkuð og voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík.

Að auki slösuðust þrír farþegar strætisvagnsins lítillega. Lögregla getur ekki veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert