Aðstandendur myndanna um James Bond hafa ákveðið að hinn nýi Bond verði reyklaus í Casino Royal til að sýna ungu fólki gott fordæmi. Þetta þykir stinga ákaflega í stúf við hina upprunalegu sögu Ian Flemings þar sem Bond keðjureykti.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem handritshöfundarnir lenda í klípu með bókina því Martin Campbell leikstjóri myndarinnar hefur sagt blaðamönnum frá erfiðleikum með eitt atriði myndarinnar. Í bókinni lendir Bond í klóm illmenna sem pynta hann með því að berja kynfæri hans með teppabankara. Campbell taldi að það gæti orðið erfitt að mynda það á sannfærandi hátt.