5 grunaðir um ölvunarakstur

mbl.is/Júlíus

Fimm ökumenn voru teknir af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis. Að öðru leyti var rólegt í höfuðborginni í nótt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Kona sem keyrði útaf á Vesturlandsvegi síðdegis í gær er grunuð um akstur undir áhrifum lyfja en hún var flutt á slysadeild. Ekki er talið að meiðsl hennar séu alvarleg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert