Fluttur á slysadeild eftir hnífstunguárás

Ráðist var á karlmann með hníf á horni Hverfisgötu og Barónsstígs um kl. 16:30 í dag. Skv. upplýsingum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var maðurinn fluttur á slysadeild, en hann skarst á hendi. Tveir hafa verið handteknir í tengslum við málið segir lögregla.

Ekki liggur fyrir hvers vegna ráðist var á manninn. Málið er í rannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert