Táragasi var skotið á mótmælendur á Austurvelli nú um klukkan hálf eitt en það mun vera í fyrsta skipti frá árinu 1949 sem slíku gasi er beitt hér á landi. Hvítan reyk lagði yfir Austurvöll þegar gashylkjunum var skotið flúðu mótmælendur af svæðinu en lögreglumenn voru allir búnir gasgrímum.
Þegar gasreykurinn dreifðist fór fólk á ný inn á Austurvöll og hóf að grýta múrsteinum og öðru lauslegu í lögreglumenn. Lögreglan skaut þá táragashylkjum að nýju að fólkinu sem flúði af hólmi. Samkvæmt upplýsingum mbl.is eru tveir lögreglumenn alvarlega slasaðir eftir að gangstéttarhellum var kastað í þá.
Nokkur hundruð manna söfnuðust saman á Austurvelli undir miðnættið í kvöld og fljótlega brutust út átök milli mótmælenda og lögreglu. Lögreglumenn beittu kylfum og síðan piparúða til að dreifa fólkinu en greip síðan til táragass eftir að hafa varað mannfjöldann við gegnum gjallarhorn. Samkvæmt upplýsingum mbl.is var skotið um tíu gassprengjum að mótmælendum.
Fólk hefur nú safnast saman framan við Stjórnarráðið. Að sögn blaðamanns mbl.is eru þar nú milli 2-300 manns og láta ófriðlega. Var m.a. rauðri málningu úðað á húsið og umferðarskilti fyrir framan brotið niður. Lögreglan fylgist grannt með. Þá er einnig nokkur hópur framan við þinghúsið og þar stendur lögreglan vörð í tvöfaldri röð.