Jeppi hafnaði á biðskýli

Ökumaður missti stjórn á jeppabifreið sinni í gærkvöldi með þeim afleiðingum að hún hafnaði inni í biðskýli við Langarima í Grafarvogi. Ekki urðu meiðsli á fólki að sögn lögreglu en mikil hálka var á götum hverfisins þegar óhappið varð.

Að sögn íbúa er biðskýlið mikið notað. Það stendur við fjölfarna götu og því mildi að enginn varð fyrir jeppanum. Fjarlægja þurfti skýlið þar sem boltar sem festu það við jörðina losnuðu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert