Nokkrir fluttir á slysadeild

Tveir bílar rákust saman fyrir skömmu á Sæbraut og var götunni lokað til vesturs af þeim sökum. Nokkrir voru fluttir á slysadeild en slysið reyndist ekki eins alvarlegt og í fyrstu var óttast. Hjáleið er nú um Holtaveg en búist er við því að umferð verði bráðlega hleypt aftur um Sæbrautina. Verið er að flytja bifreiðarnar á brott með dráttarbíl.

Tveir sjúkrabílar og tækjabíll slökkviliðsins voru sendir á staðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert