Nýr forstjóri Geysis Green

Ásgeir Margeirsson hefur ákveðið að hætta sem forstjóri Geysis Green Energy. Hefur Alexander K. Guðmundsson, fjármálastjóri Geysis, verið ráðinn í hans stað.  Stjórn félagsins hefur,  í samráði við viðskiptabanka félagsins, tekið ákvörðun um að vinna markvisst að lækkun skulda félagsins með sölu eigna þess á næstu misserum.

Helstu eignir Geysis eru 57,4% hlutur í HS Orku hf. og Jarðboranir hf.

Haft er eftir Ásgeiri í tilkynningu frá Geysi Green, að  hann hafi tilkynnt það fyrir nokkru, að ef þessi staða kæmi upp væri hann ekki rétti maðurinn til að leiða það söluferli.

„Ég hef unnið að vexti og uppgangi Geysis allt frá því félagið var stofnað og tel eðlilegt að aðrir beri ábyrgð á þeirri vinnu sem nú er framundan. Því varð að samkomulagi milli mín og stjórnar félagsins að ég léti af störfum," er haft eftir honum.

Geysir hefur unnið að uppbyggingu hitaveituverkefna í Kína auk jarðvarmaverkefna í Þýskalandi, Bandaríkjunum og á Filippseyjum. Geysir er einn af stofnaðilum Keilis, menntastofnunar á háskólastigi á Suðurnesjum. Dótturfélag Geysis, Enex ehf., lauk á síðasta ári byggingu 9,3 MW jarðvarmavirkjunar í El Salvador og er virkjunin nú í fullum rekstri.

 

Ásgeir Margeirsson.
Ásgeir Margeirsson.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert