Guardian: Búið að birta stefnuna

Jón Ásgeir Jóhannesson á þeim tíma sem Baugsmálið var fyrir …
Jón Ásgeir Jóhannesson á þeim tíma sem Baugsmálið var fyrir rétti mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Breska dagblaðið Guardian segir á vef sínum að talið sé að Jóni Ásgeiri Jóhannessyni hafi verið birt stefna í New York í gær. Eignir hans voru kyrrsettar af breskum dómara í fyrradag að beiðni slitastjórnar Glitnis. Slitastjórn Glitnis reyndi að hafa uppi á Jóni Ásgeiri í gær en hafði ekki erindi sem erfiði.

Í frétt Guardian sem var skrifuð um klukkan 20 í gærkvöldi segir að talið sé að honum hafi verið birt stefnan í annarri íbúðinni sem hann og Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona hans, eiga í New York.

Frétt Guardian

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert