Hjúkrunarrýmum fjölgað á Akranesi

Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að heimila að dvalarrýmum á Akranesi verði breytt í hjúkrunarrými. Greindi Siv forsvarsmönnum hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða á Akranesi frá ákvörðun sinni í gær.

Á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins segir, að ákvörðun ráðherra þýði að hjúkrunarrýmum á Höfða fjölgi um fimm og verði þá 46 hjúkrunarrými á heimilinu. Dvalarrýmum verði hins vegar fækkað og verði þau 32. Kostnaður við þessa breytingu verður um 15 milljónir króna.

Í heimsókn sinni á sjúkrahúsið á Akranesi greindi Siv sömuleiðis frá því að hún hefði tekið ákvörðun um að styrkja og efla heimahjúkrun á vegum heilsugæslunnar á staðnum, en með sex milljóna króna framlagi er talið unnt að tvöfalda megi heimahjúkrunina. Samtals er þannig bætt um 21 milljón króna inn í þjónustuna við aldraða á Akranesi. Hingað til hefur verið veitt heimahjúkrun og þjónusta að degi til virka daga og ekki um helgar, en nú stendur mönnum til boða þjónusta fram á kvöld alla daga, þ.e. líka um helgar.

Ráðuneytið segir, að með þessu vilji ráðherra stuðla að samþættingu heimahjúkrunar og heimaþjónustu og gefa þeim úr hópi aldraðra sem það vilja kost á að dvelja heima eins lengi. Talið sé að þessi breyting dragi úr eftirspurn eftir dýrari úrræðum eins og stofnanavist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert