Katrín segir vinstri-græna geta verið stolta af forvalinu

Katrín Jakobsdóttir.
Katrín Jakobsdóttir.

Katrín Jakobsdóttir segir alla frambjóðendur í forvali Vinstrihreyfingarinnar -græns framboðs geta verið stolta af forvalinu og hún sé hæstánægð með niðurstöðuna. Katrín, Ögmundur Jónasson og Kolbrún Halldórsdóttir leiða lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í sameiginlegu forvali fyrir þrjú kjördæmi höfuðborgarsvæðisins.

Katrín segir vinstri-græna hafa verið ánægt með fjölda framboða og góða þátttöku í forvalinu. „Þetta er auðvitað voða gaman,“ sagði Katrín í morgun við Fréttavef Morgunblaðsins. Vinstri-grænir yrðu nú að halda vel á spöðunum og ná góðu kjöri í Alþingiskosningum í vor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert