Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, segir að iðnmenntaðir munu fá aðgang að háskólum frá og með næsta skólaári, rétt eins og bókmenntaðir framhaldsskólanemar. Tillaga um lagabreytingu í þessa veru er í samráðsgátt stjórnvalda. Meira
Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins er hafinn á Hótel Sögu. Þar verða greidd atkvæði um stjórnarsáttmála verðandi ríkisstjórnar. Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti stjórnarsáttmálann með öllum greiddum atkvæðum fyrr í kvöld. Meira
Bæði formaður og varaformaður Framsóknarflokksins segja það verða að koma í ljós hvernig ráðherraskipan verður í ríkisstjórn Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna sem nú er í farvatninu. Þau segja spennandi að sjá hvernig sáttmálinn mun leggjast í Framsóknarmenn. Meira
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hyggst enn sækjast eftir endurkjöri sem formaður Framsóknarflokksins. Hann segir Sigurð Inga Jóhannsson, sem tilkynnti framboð sitt í gær, ekki hafa staðið við það sem talað var um þegar Sigurður tók við af Sigmundi sem forsætisráðherra. Meira
„Mér finnst báðir þessir leiðtogar okkar stórkostlegir menn og hafa sýnt það og sannað og mér finnst bara mikill styrkur eins flokks að eiga slíka menn,“ segir Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, um formann og varaformann Framsóknarflokksins. Meira
Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, segir að hreinskiptar umræður hafi farið fram á miðstjórnarfundi flokksins sem fór fram í dag. Spurður nánar út í það sem fór fram segir hann: „Ég fer ekki yfir það sem gerist á lokuðum fundi.“ Meira
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær flokksþing Framsóknarflokksins verður haldið. „Við erum að fara yfir þessi lagaákvæði,“ segir Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður landsstjórnar Framsóknarflokksins. Meira
Kjördæmisþing Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi felldi í dag tillögu um að fara fram á að flokksþing verði haldið hjá flokknum í haust. Meira
Miðstjórnarfundur hefur verið boðaður í Framsóknarflokknum 10. september. Þar verður ákveðið hvort efnt verður til flokksþings fyrir kosningarnar í haust. Meira
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra sagði í kvöldfréttum RÚV að hann teldi skynsamlegt sé að haldið verði flokksþing fyrir kosningar. Landsstjórn Framsóknarflokksins ákvað í gær að miðstjórnarfundur verði haldinn í byrjun september en það er í höndum miðstjórnar að taka ákvörðun um flokksþing. Meira
Þingflokksfundi Framsóknarflokksins, sem fram fór í dag vegna aflandsviðskipta Hrólfs Ölvissonar, framkvæmdastjóra flokksins, var frestað og heldur áfram á morgun. Meira
Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins hófst upp úr klukkan 20.30 en á honum verður fyrirhugað ríkisstjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn rætt. Tekið var á móti Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni flokksins, með dynjandi lófataki þegar hann gekk inn í fundarsalinn í Rúgbrauðsgerðinni. Meira
Einar Skúlason oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík segist ekki sjá ástæðu til þess að taka til sín orð Gunnars Braga Sveinssonar flokksbróður síns um að honum beri að íhuga stöðu sína í kjölfar slæmrar útkomu í kosningunum. Gunnari Braga væri nær að einbeita sér að sínu kjördæmi. Meira
Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins, sem haldinn var í dag, skorar á þingmenn flokksins að greiða ekki atkvæði með samningi um uppgjör vegna ICESAVE skuldbindinga Landsbankans, á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga. Meira
Miðstjórn Framsóknarflokksins varar við þeirri leið sem ríkisstjórnin leggur fram til stuðnings fjölskyldum og heimilum í landinu. Þetta kemur fram í stjórnmálaályktun miðstjórnar flokksins í gær. Meira
Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, segir Bjarna Harðarson þurfa að gera upp við samvisku sína hvort að hann treysti sér til að sitja áfram á þingi fyrir Framsóknarflokkinn. „Ég myndi ekki gera það.“ Bjarni sendi óvart bréf til fjölmiðla sem átti að fara á aðstoðarmann hans, þar sem Bjarni bað hann að senda bréf tveggja Skagfirðinga, sem gagnrýna Valgerði, nafnlaust á fjölmiðla. Meira
Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins verður haldinn kl. 13 í dag í safnaðarheimili Háteigskirkju. Fundurinn hefst með ávarpi Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins, en síðan flytur Ragnar Árnason, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, erindi um stöðu og horfur í þjóðarbúskapnum og Bjarni Frímannsson, lektor við sömu deild, fjallar um horfur í efnahag heimilanna. Meira
Guðni Ágústsson, sem nú tekur við formennsku í Framsóknarflokknum af Jóni Sigurðssyni, sagði á blaðamannafundi í dag að kosið verði um nýjan varaformann á miðstjórnarfundi. Samkvæmt lögum Framsóknarflokksins kýs miðstjórn nýja fulltrúa í stað formanns, varaformanns eða ritara ef þeir hverfa úr embætti og gildir kjör þeirra fram að næsta flokksþingi. Meira
Haustfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins verður haldinn á morgun, laugardag, á Hótel Loftleiðum. Fundurinn hefst klukkan 10 og er áætlað að honum ljúki um kl. 17. Meira
Vaxandi líkur eru á því að flokksþingi Framsóknarflokksins, sem halda átti í haust, verði flýtt og það verði haldið í þessum mánuði. Á þinginu verður nýr formaður Framsóknarflokksins kosinn, en allt stefnir í harðan slag um embættið. h Meira