Þorsteinn Bachmann, Egill Ólafsson, Helgi Björnsson, Gísli Örn Garðarsson, Benedikt Erlingsson, Ingvar E. Sigurðsson og Ólafur Egill Egilsson eru meðal þeirra sem hrista á sér rassinn í nýju myndbandi fyrir Mottumars 2015.
„Við á Brandenburg gerðum þetta fyrir Krabbó, Stórveldið framleiddi, Sammi og Gunni leikstýrðu,“ segir Bragi Valdimar Skúlason, einn af eigendum Brandenburg-auglýsingastofunnar. Leikarar í Vesturporti eru áberandi í myndbandinu ásamt fleiri þjóðþekktum mönnum sem dilla á sér bossanum við lagið Hossa hossa. Hljómsveitin Amabadama gaf lagið til Mottumars og allir sem komu að gerð myndbandsins gáfu vinnu sína.
Bragi Valdimar segir að hugmyndin hafi verið að gera ekta dillibossamyndband en í stað þess að nota kvenfólk hafi kviknað sú hugmynd að láta karla dilla sér.