Ástin, þetta furðulega fyrirbæri sem ekki er hægt að búa til upp úr þurru, blossaði upp á árinu sem er að líða og voru margir sem fundu sálufélaga sinn. Ástin spyr hvorki um aldur né fyrri störf og þegar hið rétta kemerstí finnst halda engin bönd. Þetta vita þeir sem hafa orðið raunverulega ástfangnir.
Það varð allt vitlaust þegar út spurðist að ástin hefði kviknaði í sjónvarpsþættinum Biggest Loser sem sýndir eru á Skjáeinum. Þættirnir fóru í loftið í janúar 2016 og þegar seríunni lauk kom í ljós að fólk hafði ekki bara verið að drekka vatn og mæta á æfingar.
Agla Steinunn Bjarnþórudóttir og Sigurgeir Jónsson, sem bæði öttu kappi í Biggest Loser, byrjuðu saman í sjónvarpsþáttunum. Þau kynntust við tökur á þáttunum, en eins og frægt er orðið stóð Agla Steinunn uppi sem sigurvegari þáttanna, en Sigurgeir endaði í öðru sæti. Parið felldi síðan hugi saman eftir að keppni lauk.
Bæði eru Agla og Sigurgeir hin hressustu og segja lífið hafa gjörbreyst eftir þátttöku í Biggest Loser. Til að mynda krækti Agla nýverið í draumastarfið sem hún þorði varla að láta sig dreyma um áður en hún hóf keppni. Sjálf segist hún varla trúa því hversu mikið líf hennar hefur breyst á skömmum tíma.
Í samtali við Smartland sögðu skötuhjúin næsta mál á dagskrá vera ferð til Balí, þar sem þau ætla að slaka á og njóta lífsins saman í þrjár vikur.
Frétt af Smartlandi: Ástin kviknaði í Biggest Loser
Sólmundur Hólm og Viktoría Hermannsdóttir byrjuðu að hittast í sumar og vinna nú undir sama þaki á RÚV. Hún á fréttadeildinni og hann á Rás 2. Parið hefur verið áberandi á samfélagsmiðlunum og fer ekki á milli mála að þegar þau hittust fundu þau hinn helminginn af sér. Séð og Heyrt sagði frá sambandinu á dögunum nema hvað á forsíðunni leit svolítið út eins og Viktoría og Svala Ólafsdóttir hefðu fundið ástina en svo var nú ekki.
Fjölmiðlamaðurinn Hjörvar Hafliðason og Heiðrún Lind Marteinsdóttir lögfræðingur og framkvæmdastjóri SFS fundu ástina í faðmi hvors annars. Þau eru bæði miklir húmoristar og með skemmtilegra fólki sem hefur fæðst í þennan heim. Hlustendur Brennslunnar á FM957 fá þetta náttúrlega beint í æð í útvarpinu. Hér á árum áður fékk húmor og sniðugheit Heiðrúnar Lindar á bloggsíðu hennar Járnskvísan.blog.is. Því miður finnast engar færslur á þeirri síðu í dag.
Frétt af Smartlandi: Hjörvar og Heiðrún Lind nýtt par
Skúli Mogensen forstjóri WOW air og Íris Arna Geirsdóttir fitnessdrottning hafa verið að hittast síðan í sumar. Á dögunum birti hún mynd af þeim á Instagram sem tekin er á Miami í Flórída. Ekki fer framhjá neinum að parið hefur það gott og nýtur lífsins.
Ágústa Eva Erlendsdóttir söng- og leikkona og Aron Pálmarsson handboltastjarna fundu ástina á árinu. Parið er ákaflega kraftmikið og skemmtilegt og ekki er laust við að hjónasvipur sé með þeim. Aron er mikið á ferðalögum út af handboltanum og Ágústa Eva býr í Hveragerði. Parið lætur það þó ekki stoppa sig og nýtir hverja stund til samvista við hvort annað og þá er gott að það séu góðar flugsamgöngur á milli Íslands og meginlands Evrópu.
Frétt af Smartlandi: Ágústa Eva og Aron skráðu sig í samband