Kristján Einar stofnar fyrirtæki og hyggst leigja út húsbíla

Kristján Einar Sigurbjörnsson hefur stofnað fyrirtæki.
Kristján Einar Sigurbjörnsson hefur stofnað fyrirtæki. Ljósmynd/Facebook

Kristján Einar Sigurbjörnsson, Kleini, hefur stofnað fyrirtækið Kristján Einar ehf. DV greinir frá því. Þar kemur fram að Kleini sé að vinna að nafnabreytingu á fyrirtækinu en Kristján Einar er skráður stofnandi félagsins og annar af stjórnarmönnum þess. Hinn er faðir hans, Sigurbjörn Kristján Einarsson. 

Fram kemur að tilgangur félagsins sé „útleiga innréttaðra sendla (campera), kaup og sala á skyldum vörum, rekstur fasteigna og lánastarfsemi.“

Camperar eru litlir húsbílar sem auðvelt er að ferðast um landið í. 

„Já. Við höfum stofnað félag sem stendur undir nafninu Kristján Einar ehf. En er í ferli nafnabreytinga. Þegar allt er komið á sitt ról mun koma yfirlýsing um starfsemina sem félagið hefur upp á að bjóða,“ sagði Kristján Einar í samtali við DV. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál