Mikil eftirvænting skapaðist í Kaupmannahöfn í morgun þegar íslenska vörumerkið 66°Norður ákvað að halda sína fyrstu sýnishornaútsölu. Sýnishornasalan hófst klukkan átta í morgun að staðartíma og var komin 200 metra biðröð klukkan sjö, klukkustund áður en dyrnar opnuðu.
Tíu ár eru frá því 66°Norður opnaði verslun í Sværtegade í Kaupmannahöfn. Frá því búðin opnaði hefur aldrei verið útsala í búðinni og allar vörur sem ekki hafa selst upp hafa verið fluttar til Íslands og boðnar Íslendingum á lægra verði á útsölumörkuðum 66°Norður í Faxafeni, Reykjavík og Skipagötu, Akureyri.
Danir hafa því ekki getað verslað 66°Norður vörur á lækkuðu verði í Danmörku og var því spennan mikil hjá Kaupmannahafnarbúum.