Verstappen fremstur á ráspól í Kína

Red Bull liðarnir Sergio Perez og Max Verstappen ásamt Fernando …
Red Bull liðarnir Sergio Perez og Max Verstappen ásamt Fernando Alonso sem ekur fyrir Aston Martin AFP/Pedro Pardo

Heimsmeistarinn Max Verstappen verður fremstur á ráspól í kínverska kappakstrinum. Verstappen sigraði einnig fyrstu sprettkeppni tímabilsins í morgun.

Verstappen sigraði sprettkeppnina í morgun eftir harða baráttu við Lewis Hamilton og Fernando Alonso en Spánverjinn þurfti að draga sig úr keppni með sprungið dekk eftir núning við landa sinn, Carlos Sainz hjá Ferrari.

Red Bull bílarnir skipa fremstu röðina í keppninni á morgun en Sergio Perez var hársbreidd á undan Alonso sem hefur keppni þriðji í rásröðinni. Lewis Hamilton átti slæman dag og ræsir í átjanda sæti.

Red Bull liðið leiðir heimsmeistarakeppni bílaframleiðanda og Verstappen er fremstur ökuþóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert