Tvítugur landsliðsmaður fannst látinn

Josh Baker var aðeins tvítugur.
Josh Baker var aðeins tvítugur. Ljósmynd/Worcester

Englendingurinn Josh Baker, efnilegur krikketleikmaður, fannst látinn í íbúð sinni um helgina einum degi eftir að hann spilaði leik fyrir Worcester í efstu deild Englands

Baker var aðeins tvítugur að aldri, en hann gerðist atvinnumaður í krikket árið 2021. Hann lék 22 leiki í efstu deild Englands og þá lék hann með A-landsliði þjóðar sinnar.

„Við erum í sárum eftir fréttir um andlát Josh. Hann var meira en bara liðsfélagi. Hann var mikilvægur hlekkur í krikketfjölskyldunni,“ segir m.a. í yfirlýsingu Worcester.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert