Fylgja Hamilton til Ferrari

Ferrari styrkir stoðirnar fyrir næsta tímabil.
Ferrari styrkir stoðirnar fyrir næsta tímabil. AFP/GREG BAKER

Tveir lykilstarfsmenn Mercedes-liðsins í Formúlu 1 kappakstrinum ganga til liðs við Ferrari að keppnistímabilinu loknu. Þeir Loic Serra og Jerome d'Ambrosio fylgja Lewis Hamilton til Ítalíu.

Serra fer í bílahönnunardeild Ferrari og d'Ambrosio verður aðstoðarliðstjóri og mun bera ábyrgð á þróun ungra ökuþóra í akademíu liðsins sem er sams konar hlutverk og hann gegndi hjá Mercedes. 

Fred Vasseur, liðstjóri Ferrari, þykir hafa gert góða hluti síðan hann tók við stjórnartaumum liðsins en Adrian Newey, bílahönnuður Red Bull, hefur einnig verið þrálátlega orðaður við Ferrari.

Frédéric Vasseur.
Frédéric Vasseur. AFP/Giorgio Viera
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert