Eyjamenn stálu stigunum á Hlíðarenda

Kristinn Jakobsson dómari rekur Tryggva Guðmundsson Eyjamann af velli í …
Kristinn Jakobsson dómari rekur Tryggva Guðmundsson Eyjamann af velli í leiknum á Hlíðarenda í kvöld. mbl.is/Golli

Valur og ÍBV mætast í úrvalsdeild karla í fótbolta, Pepsi-deildinni, á Vodafonevellinum að Hlíðarenda klukkan 19.15 en Valsmenn fagna 100 ára afmæli sínu í dag. ÍBV vann 1:0 með glæsilegu sigurmarki Þórarins Inga Valdimarssonar í uppbótartíma. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Eyjamenn voru í bullandi vandræðum í síðari hálfleik vegna þess að Tryggvi Guðmundsson lét reka sig út af undir lok fyrri hálfleiks og mark Þórarins kom eins og þruma úr heiðskýru lofti.

Byrjunarlið Vals:

Haraldur Björnsson - Jónas Þór Næs, Halldór Kristinn Halldórsson, Atli Sveinn Þórarinsson, Pól Jóhannus Justinussen - Haukur Páll Sigurðsson, Christian Mouritsen, Guðjón Pétur Lýðsson - Matthías Guðmundsson, Hörður Sveinsson, Arnar Geirsson.

Varamenn:

Sindri Snær Jensson - Stefán Jóhann Eggertsson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Rúnar Már Sigurjónsson, Jón Vilhelm Ákason, Guðmundur Hafsteinsson, Andri Fannar Stefánsson.

Byrjunarlið ÍBV:

Abel Dhiaira - Kelvin Mellor, Rasmus Christiansen, Eiður Aron Sigurbjörnsson, Matt Garner - Andri Ólafsson, Tonny Mawejje, Bryan Hughes - Þórarinn Ingi Valdimarsson, Jordan Connerton, Tryggvi Guðmundsson. 

Varamenn:

Albert Sævarsson - Brynjar Gauti Guðjónsson, Yngvi Borgþórsson, Anton Bjarnason, Guðmundur Þórarinsson, Arnór Eyvar Ólafsson, Denis Stynik.

Valur 0:1 ÍBV opna loka
90. mín. Rúnar Már Sigurjónsson (Valur) á skot framhjá Mjög fast skot rétt utan teigs en framhjá markinu hægra megin.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert