Knattspyrnudeild Tindastóls hefur fengið til sín finnska miðjumanninn Annika Haanpää mun hún leika með liðinu á tímabilinu sem er nýhafið.
Haanpää, sem er 25 ára, kemur til Tindastóls frá HPS Helsinki í heimalandinu. Hún hefur alla tíð leikið í Finnlandi, þar til nú.
Ásamt því að leika með HPS Helsinki hefur hún einnig leikið með HJK, TiPS og Turku. Tindastóll tapaði fyrir FH á heimavelli, 1:0, í 1. umferð Bestu deildarinnar.