Ólafur Karl aftur til Vals

Ólafur Karl Finsen í baráttu við Helga Val Daníelsson í …
Ólafur Karl Finsen í baráttu við Helga Val Daníelsson í leik Vals og Fylkis sumarið 2019. mbl.is/Árni Sæberg

Knattspyrnumaðurinn Ólafur Karl Finsen hefur fengið félagaskipti til Vals áður en félagaskiptaglugganum hér á landi verður lokað í dag.

Ólafur Karl lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil, þar sem hann lék með Fylki, en hefur undanfarna daga æft með Val líkt og Fótbolti.net skýrði frá í gær.

Í dag fékk sóknarmaðurinn svo félagaskipti til Vals, þar sem hann lék áður frá 2018 til 2020.

Ólafur Karl er 32 ára gamall en þó hann sé búinn að fá félagaskipti liggur það ekki fyrir hvort skórnir séu formlega komnir af hillunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert