KR fékk sænska knattspyrnumanninn Moutaz Neffati lánaðan frá Norrköping í Svíþjóð áður en félagaskiptaglugganum var lokað í gærkvöld.
Neffati er 19 ára gamall og spilar sem kantmaður eða framsækinn miðjumaður. KR missti Jóhannes Kristinn Bjarnason í meiðsli í leik gegn Fram á laugardaginn var en Aron Sigurðarson og Hrafn Tómasson meiddust í fyrstu umferð. Hrafn sleit krossband og leikur ekki meira á leiktíðinni.
KR tilkynnti um félagskipti Neffati á Instagram síðu félagsins í kvöld. KR situr í 4. sæti Bestu deildar karla með 6 stig eftir þrjá leiki.
View this post on InstagramA post shared by Knattspyrnufélag Reykjavíkur - FC Reykjavik, KR (@krreykjavik1899)